Bankareikningum Flokks fólksins lokað um tíma

Alþingi | 6. maí 2025

Bankareikningum Flokks fólksins lokað um tíma

Bankareikningum Flokks fólksins í Arion banka var lokað í síðasta mánuði þar sem áreiðanleikakönnun hafði ekki verið fyllt út. Reikningarnir hafa nú verið opnaðir aftur.

Bankareikningum Flokks fólksins lokað um tíma

Alþingi | 6. maí 2025

Inga Sæland, formaður Flokks fólksins og félags- og húsnæðismálaráðherra.
Inga Sæland, formaður Flokks fólksins og félags- og húsnæðismálaráðherra. mbl.is/Eyþór

Banka­reikn­ing­um Flokks fólks­ins í Ari­on banka var lokað í síðasta mánuði þar sem áreiðan­leika­könn­un hafði ekki verið fyllt út. Reikn­ing­arn­ir hafa nú verið opnaðir aft­ur.

Banka­reikn­ing­um Flokks fólks­ins í Ari­on banka var lokað í síðasta mánuði þar sem áreiðan­leika­könn­un hafði ekki verið fyllt út. Reikn­ing­arn­ir hafa nú verið opnaðir aft­ur.

RÚV grein­ir frá.

Fram kem­ur í frétt RÚV að flokkn­um hafi verið gert að fylla út áreiðan­leika­könn­un eft­ir að hann varð form­lega að stjórn­mála­sam­tök­um, en til­kynnt var um þá breyt­ingu á lands­fundi flokks­ins í lok fe­brú­ar.

Bank­inn má ekki eiga í viðskipt­um við fyr­ir­tæki eða fé­lög nema áreiðan­leika­könn­un hafi verið fyllt út.

Inga Sæ­land, formaður Flokks fólks­ins og fé­lags- og hús­næðismálaráðherra, vildi ekki tjá sig um lok­un reikn­ing­anna í sam­tali við RÚV.

mbl.is