Hæstiréttur Bandaríkjanna hefur heimilað ríkisstjórn Donalds Trumps Bandaríkjaforseta að framfylgja banni sínu við að transfólk fái að starfa í hernum.

Ákvörðunin er tímabundin á meðan lagalegar áskoranir halda áfram.
Fljótlega eftir að Trump tók við völdum í Hvíta húsinu í upphafi árs undirritaði hann forsetatilskipun sem kveður á um að trans fólki sé óheimilt að starfa í hernum. Í úrskurðinum segir meðal annars að vera þeirra í hernum „stangist á við skuldbindingu hermanna um heiðarlegan, sannan og agaðan lífstíl, jafnvel í einkalífi“ og að hún sé skaðleg hernaðarviðbúnaði.
Skömmu síðar gaf Pete Hegseth, varnarmálaráðherra Bandaríkjanna, út stefnu þar sem hann gaf herþjónustum 30 daga frest til að finna út úr því hvernig þeir ætluðu að bera kennsl á trans-hermenn til að vísa þeim úr hernum.
Sjö trans-hermenn hafa höfðað mál til að fá banninu hnekkt en þeir hafa samtals starfað í 115 ár í hernum og hafa hlotið yfir 70 orður.
Lögmaður hermannanna segir að Trump-stjórnin hafi ekki gefið neinar skýringar á því hvers vegna ætti skyndilega að vísa trans-hermönnum, sem hafa sinnt herskyldu sinni síðastliðin fjögur ár án vandkvæða, úr hernum.
Úrskurður Hæstaréttar fer fyrir áfrýjunardómstólinn í San Fransisco en talið er að það muni taka nokkra mánuði að fá niðurstöðu úr því. Á meðan mun úrskurður Hæstaréttar standa.