Nicole Kidman lét síða hárið fjúka

Poppkúltúr | 6. maí 2025

Nicole Kidman lét síða hárið fjúka

Ástralska verðlaunaleikkonan Nicole Kidman vakti ómælda athygli á rauða dregli Met Gala-hátíðarinnar á mánudagskvöldið.

Nicole Kidman lét síða hárið fjúka

Poppkúltúr | 6. maí 2025

Nicole Kidman var stórglæsileg til fara.
Nicole Kidman var stórglæsileg til fara. Ljósmynd/AFP

Ástr­alska verðlauna­leik­kon­an Nicole Kidm­an vakti ómælda at­hygli á rauða dregli Met Gala-hátíðar­inn­ar á mánu­dags­kvöldið.

Ástr­alska verðlauna­leik­kon­an Nicole Kidm­an vakti ómælda at­hygli á rauða dregli Met Gala-hátíðar­inn­ar á mánu­dags­kvöldið.

Kidm­an, sem er þekkt fyr­ir síða rauða lokka, lét hárið fjúka og skart­ar nú svo­kallaðri pix­ie-klipp­ingu.

Óskar­sverðlauna­leik­kon­an, sem er hvað fræg­ust fyr­ir leik sinn í kvik­mynd­um á borð við Moul­in Rou­ge, The Hours, Eyes Wide Shut og Practical Magic, frum­sýndi nýja hárið er hún gekk upp tröpp­urn­ar sem liggja að Metropolit­an-safn­inu í New York-borg.

Tísku­gagn­rýn­end­ur gripu and­ann á lofti af undr­un þegar Kidm­an mætti á svæðið og hafa fjöl­marg­ir hrósað leik­kon­unni í há­stert fyr­ir breyt­ing­una.

Kidm­an, 57 ára, var einkar glæsi­leg í svört­um kjól frá spænska tísku­hús­inu Balenciaga.

Nýja klippingin vakti mikla athygli á dreglinum.
Nýja klipp­ing­in vakti mikla at­hygli á dregl­in­um. Ljós­mynd/​AFP
Nicole Kidman á Met Gala-hátíðinni.
Nicole Kidm­an á Met Gala-hátíðinni. Ljós­mynd/​Dia Dipa­supil
mbl.is