Söngkonan Rihanna kom á óvart – ekki í fyrsta skipti – á Met Gala-viðburðinum í gær þegar hún skartaði ekki einungis töff klæðnaði frá hönnuðinum Marc Jacobs heldur einnig fallegri kúlu. Hún á von á sínu þriðja barni með rapparanum A$AP Rocky, en fyrir eiga þau synina RZA, þriggja ára, og Riot, eins árs.

Þetta er ekki í fyrsta skipti sem Rihanna mætir á stórviðburð með „óvænta“ óléttukúlu, en það var á Ofurskálinni 2023 þegar hún kom fram í hálfleik klædd rauðum hipphopp-fatnaði en þröngum topp svo kúlan sást greinilega.
Met Gala-viðburðurinn fer fram á Metropolitan-listasafninu og þangað mæta allar helstu stjörnur Hollywood í sínu fínasta og oft framúrstefnulegasta pússi.
Viðburðurinn safnar peningum fyrir búningastofnun listasafnsins og í ár var þemað „sérsniðið fyrir þig“ í takt við sýningu búningastofnunarinnar Superfine: Tailoring Black Style, sem verður opnuð almenningi 10. maí.