Gagnrýnir Trump harðlega í fyrsta viðtalinu

Gagnrýnir Trump harðlega í fyrsta viðtalinu

Joe Biden, fyrrverandi bandaríkjaforseti, sakar eftirmann sinn, Donald Trump, um að friðþægja rússnesk yfirvöld með því að á þrýsta á Úkraínu að gefa upp landsvæði sitt.

Gagnrýnir Trump harðlega í fyrsta viðtalinu

Donald Trump Bandaríkjaforseti | 7. maí 2025

Donald Trump og Joe Biden við innsetningarathöfn Trumps 20. janúar. …
Donald Trump og Joe Biden við innsetningarathöfn Trumps 20. janúar. Biden er ekki sáttur með fyrstu 100 daga Trumps í embætti. AFP/Chip Somodevilla

Joe Biden, fyrr­ver­andi banda­ríkja­for­seti, sak­ar eft­ir­mann sinn, Don­ald Trump, um að friðþægja rúss­nesk yf­ir­völd með því að á þrýsta á Úkraínu að gefa upp landsvæði sitt.

Joe Biden, fyrr­ver­andi banda­ríkja­for­seti, sak­ar eft­ir­mann sinn, Don­ald Trump, um að friðþægja rúss­nesk yf­ir­völd með því að á þrýsta á Úkraínu að gefa upp landsvæði sitt.

Þetta kem­ur fram í fyrsta viðtali sem birt­ist við Biden síðan hann lét af störf­um sem for­seti.

BBC birt­ir viðtalið en í því seg­ir Biden að Vla­dimír Pútín Rúss­lands­for­seti trúi að Úkraína sé hluti af Rússlandi og að „hver sá sem held­ur að hann muni stoppa“ ef að úkraínsk yf­ir­ráðasvæði verði látið af hendi sem hluti af friðarsamn­ingi sé kjáni.

Spurður út í til­lögu Trumps um að úkraínsk yf­ir­völd láti af hendi landsvæði til að binda enda á stríðið sagði Biden: „Þetta er nú­tíma friðþæg­ing.“

„Hvaða for­seti tal­ar svona?“

„Hvað í ósköp­un­um er í gangi hér? Hvaða for­seti tal­ar svona? Þetta er ekki hver við erum. Við snýst um frelsi, lýðræði, tæki­færi,“ sagði Biden.

Viðtalið við Biden birt­ist í þætt­in­um Today í morg­un en nú eru rúm­lega 100 dag­ar liðnir frá því að Trump tók við völd­um. Á þeim tíma hef­ur hon­um tek­ist að gjör­breyta bæði inn­an­rík­is- og ut­an­rík­is­stefnu Banda­ríkj­anna.

„Ég er áhyggju­full­ur um að Evr­ópa muni missa traust á staðfestu Banda­ríkj­anna og for­ystu Banda­ríkj­anna og heims­ins. Ekki aðeins til að tak­ast á við NATO held­ur einnig önn­ur mál sem hafa af­leiðing­ar,“ sagði Biden.

Hegðar sér ekki eins og for­seti

Und­ir lok viðtals­ins var Biden spurður hvort hon­um finn­ist Trump hegða sér eins og kóng­ur frek­ar en for­seti.

„Hann er ekki að hegða sér eins og for­seti úr Re­públi­kana­flokkn­um,“ svaraði Biden.

Hann bætti þó við að hann hefði nú minni áhyggj­ur af framtíð lýðræðis í Banda­ríkj­un­um en hann hafi haft um tíma því hann held­ur að Re­públi­kana­flokk­ur­inn sé „að átta sig á því hvað Trump snýst um“.

mbl.is