Smokey Robinson sætir ásökunum um kynferðislega áreitni

Poppkúltúr | 7. maí 2025

Smokey Robinson sætir ásökunum um kynferðislega áreitni

Bandaríski tónlistarmaðurinn Smokey Robinson sætir ásökunum um kynferðislega áreitni og óviðeigandi framkomu frá fjórum fyrrverandi starfsmönnum sínum.

Smokey Robinson sætir ásökunum um kynferðislega áreitni

Poppkúltúr | 7. maí 2025

Smokey Robinson.
Smokey Robinson. Ljósmynd/AFP

Banda­ríski tón­list­armaður­inn Smokey Robin­son sæt­ir ásök­un­um um kyn­ferðis­lega áreitni og óviðeig­andi fram­komu frá fjór­um fyrr­ver­andi starfs­mönn­um sín­um.

Banda­ríski tón­list­armaður­inn Smokey Robin­son sæt­ir ásök­un­um um kyn­ferðis­lega áreitni og óviðeig­andi fram­komu frá fjór­um fyrr­ver­andi starfs­mönn­um sín­um.

Kæra á hend­ur hinum 85 ára gamla söngv­ara var lögð fram í vik­unni.

Að sögn sak­sókn­ara í Los Ang­eles barst kær­an í gær, þriðju­dag­inn 6. maí, en Robin­son er sakaður um kyn­ferðis­legt of­beldi, lík­ams­árás, frels­is­svipt­ingu, kyn­bundið of­beldi og fyr­ir að hafa skapað óvin­veitt vinnu­um­hverfi.

Stefn­end­ur halda því fram að meint kyn­ferðis­leg áreitni Robin­son hafi verið vilj­andi, óvæg­in og ill­gjörn.

Í kær­unni er einnig minnst á eig­in­konu tón­list­ar­manns­ins, Frances Robin­son. Henni er gefið að sök að hafa ekki reynt að grípa til viðeig­andi aðgerða og þannig tekið þátt í refsi­verðri hátt­semi.

Stefn­end­urn­ir, fjór­ar kon­ur sem unnu á heim­ili söngv­ar­ans á ólík­um tím­um, fara fram á skaðabæt­ur að upp­hæð ekki lægri en 50 millj­ón­ir banda­ríkja­dala.

mbl.is