„Enn er tími til að sýna ábyrgð og ganga til liðs við málið því að þetta snýst ekki um mig og þetta snýst ekki um Janus endurhæfingu, þetta snýst um unga fólkið okkar og hvort það eigi rétt á að fá þjónustu sem virkar eða ekki.“

Þetta sagði Ingibjörg Isaksen, þingflokksformaður Framsóknarflokksins, í ræðu sinni undir dagskrárlið um störf þingsins á Alþingi í dag.
Á morgun mun Ingibjörg leggja fram þingsályktunartillögu um að tryggja áframhaldandi samþætta og einstaklingsmiðaða geðendurhæfingu fyrir ungmenni með fjölþættan vanda.
Ingibjörg sagði málið ekki flókið og ekki heldur umdeilt. Hún sagði það stutt af fjölmörgum fagaðilum og samtökum en starfsemi Janusar endurhæfingar, sem hafði í rúm 25 ár þjónustað ungt fólk með alvarlegan geðrænan og félagslegan vanda, var lögð niður nýlega án þess að annað úrræði tæki við í staðinn.
„Það sem hefur virkað er nú lagt niður og engin sambærileg lausn er tilbúin í staðinn,“ sagði Ingibjörg.
„Við megum ekki gleyma því, virðulegi forseti, að fyrir marga skjólstæðinga Janusar hefur þetta úrræði ekki bara verið valkostur, það hefur verið líflína. Þjónustan hefur skipt sköpum og fyrir marga því verið beinlínis lífsspursmál,“ sagði Ingibjörg í ræðustól í dag.
Sagði hún tillöguna fela í sér bráðabirgðasamning, samráð við fagfólk og notendur og vinnu að framtíðarskipulagi. Hún muni skapa brú á milli þess sem hefur virkað og þess sem þurfi að byggja til framtíðar.
„Það verður því forvitnilegt og sannarlega pólitískt áhugavert að sjá hve margir stjórnarþingmenn sýna í dag að þau orð sem skrifuð voru í stjórnarsáttmála séu ekki orðin tóm,“ sagði Ingibjörg.