David B. Tencer, biskup kaþólsku kirkjunnar á Íslandi, er hæstánægður með nýjan páfa, Leó XIV.
David B. Tencer, biskup kaþólsku kirkjunnar á Íslandi, er hæstánægður með nýjan páfa, Leó XIV.
David B. Tencer, biskup kaþólsku kirkjunnar á Íslandi, er hæstánægður með nýjan páfa, Leó XIV.
Í samtali við mbl.is segir hann það traustvekjandi að nýr páfi hafi reynslu af störfum biskups en Leó var áður erkibiskup í Perú. Fyrir tveimur árum var hann svo valinn af Frans páfa til að sjá um að velja næstu kynslóð biskupa.
Aðspurður segist David gleðjast yfir nýjum páfa, sérstaklega vegna reynslu hans frá fyrri störfum.
„Hann var yfirmaður í biskupadeildinni, hann var kardínálinn sem var ábyrgur fyrir henni. Þannig þekkir hann fyrst og fremst marga biskupa um allan heim en hann veit líka hvernig það er að vera biskup af því að hann var sjálfur biskup í Perú.
Þetta er reynsla sem gerir honum kleift að skilja alla, ekki bara fólkið í kringum hann,“ segir David.
David segir alla á biskupsstofu hafa horft saman á útsendinguna frá Vatikanínu, talað saman og beðið bænir saman. Mikill eldmóður hafi ríkt meðal hópsins.
„Á meðan á útsendingunni stóð hugsaði ég með mér „hvað getum við gert fyrir hann?“,“ segir David og bendir á að ekki sé einfalt að vera páfi í dag.
„Á sama augnabliki sagði Leó sjálfur í útsendingunni „biðjið fyrir mér“. Það var eins og svar við vangaveltunni.“