Forsprakki 3 Doors Down með illvígt krabbamein

Poppkúltúr | 8. maí 2025

Forsprakki 3 Doors Down með illvígt krabbamein

Bandaríski tónlistarmaðurinn Brad Arnold, forsprakki hljómsveitarinnar 3 Doors Down, hefur greinst með krabbamein. Fannst krabbameinið er hann gekkst undir læknisskoðun eftir að hafa fundið fyrir slappleika í nokkrar vikur.

Forsprakki 3 Doors Down með illvígt krabbamein

Poppkúltúr | 8. maí 2025

Brad Arnold greindi frá tíðindunum í færslu á Instagram.
Brad Arnold greindi frá tíðindunum í færslu á Instagram. Skjáskot/Instagram

Banda­ríski tón­list­armaður­inn Brad Arnold, forsprakki hljóm­sveit­ar­inn­ar 3 Doors Down, hef­ur greinst með krabba­mein. Fannst krabba­meinið er hann gekkst und­ir lækn­is­skoðun eft­ir að hafa fundið fyr­ir slapp­leika í nokkr­ar vik­ur.

Arnold, sem er 46 ára, greindi frá þessu í færslu á In­sta­gram-síðu sinni í gær­dag.

Tón­list­armaður­inn er með fjórða stigs nýrna­frumukrabba­mein, renal cell carc­in­oma, sem hef­ur þegar dreift sér í lung­un.

3 Doors Down, hvað þekkt­ust fyr­ir rokkslag­ar­ann Krypt­onite frá ár­inu 2000, hef­ur af­lýst tón­leika­ferðalagi sínu um Banda­rík­in vegna veik­inda Arnold.

View this post on In­sta­gram

A post shared by 3 Doors Down (@3doors­down)

mbl.is