Halla Gunnarsdóttir selur 143,5 milljóna parhús

Heimili | 8. maí 2025

Halla Gunnarsdóttir selur 143,5 milljóna parhús

Halla Gunnarsdóttir, nýkjörinn formaður VR, hefur sett parhús sitt við Vífilsgötu á sölu. Um er að ræða 176 fm parhús sem reist var 1936. Halla festi kaup á húsinu 2021. Hún á 70% í fasteigninni á móti tengdamóður sinni, Birnu Sólveigu Guðmundsdóttur, sem á 30%. Birna Sólveig er móðir Sveins Mána Jóhannessonar, eiginmanns Höllu.

Halla Gunnarsdóttir selur 143,5 milljóna parhús

Heimili | 8. maí 2025

Halla Gunnarsdóttir, formaður VR.
Halla Gunnarsdóttir, formaður VR. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Halla Gunn­ars­dótt­ir, ný­kjör­inn formaður VR, hef­ur sett par­hús sitt við Víf­ils­götu á sölu. Um er að ræða 176 fm par­hús sem reist var 1936. Halla festi kaup á hús­inu 2021. Hún á 70% í fast­eign­inni á móti tengda­móður sinni, Birnu Sól­veigu Guðmunds­dótt­ur, sem á 30%. Birna Sól­veig er móðir Sveins Mána Jó­hann­es­son­ar, eig­in­manns Höllu.

Húsið er fal­lega inn­réttað með vönduðum og tíma­laus­um hús­gögn­um.

Í stof­unni er hlý­legt um að lit­ast. Tekk­hill­ur hitta lít­inn græn­an Flowerpot-lampa, nokkr­ar bæk­ur eft­ir Hall­dór Kilj­an Lax­ness og inn­skots­borð úr tekki. Inn af stof­unni og borðstof­unni er eld­hús með hvít­um sprautu­lökkuðum inn­rétt­ing­um og bleik­um veggj­um.

Sjá nán­ar á fast­eigna­vef mbl.is: Víf­ils­gata 1 

mbl.is