Þungar áhyggjur af hækkun veiðigjalda

Veiðigjöld | 8. maí 2025

Þungar áhyggjur af hækkun veiðigjalda

Stjórn Vestfjarðastofu lýsir yfir þungum áhyggjum af frumvarpi ríkisstjórnarinnar um hækkun á veiðigjaldi og væntanlegum áhrifum þess á atvinnulíf og samfélög á Vestfjörðum. Þetta kemur fram í tilkynningu sem send var á mbl.is.

Þungar áhyggjur af hækkun veiðigjalda

Veiðigjöld | 8. maí 2025

Hanna Katrín Friðriksson atvinnuvegaráðherra sést mæla fyrir frumvarpi um breytingar …
Hanna Katrín Friðriksson atvinnuvegaráðherra sést mæla fyrir frumvarpi um breytingar á veiðigjaldi. Morgunblaðið/Eggert

Stjórn Vest­fjarðastofu lýs­ir yfir þung­um áhyggj­um af frum­varpi rík­is­stjórn­ar­inn­ar um hækk­un á veiðigjaldi og vænt­an­leg­um áhrif­um þess á at­vinnu­líf og sam­fé­lög á Vest­fjörðum. Þetta kem­ur fram í til­kynn­ingu sem send var á mbl.is.

Stjórn Vest­fjarðastofu lýs­ir yfir þung­um áhyggj­um af frum­varpi rík­is­stjórn­ar­inn­ar um hækk­un á veiðigjaldi og vænt­an­leg­um áhrif­um þess á at­vinnu­líf og sam­fé­lög á Vest­fjörðum. Þetta kem­ur fram í til­kynn­ingu sem send var á mbl.is.

Stjórn­in seg­ir jafn­framt að miðað við þær for­send­ur sem liggja að baki breyt­ingu á veiðigjaldi megi telja ljóst að áhrif­in verði mjög íþyngj­andi og koma afar hart niður á litl­um og meðal­stór­um bol­fiskút­gerðum. Á Vest­fjörðum eru ein­göngu litl­ar og meðal­stór­ar út­gerðir í bol­fisk­veiðum og vinnslu.

Stjórn­in vís­ar í grein­ingu Deloitte og vest­firskra sjáv­ar­út­vegs­fyr­ir­tækja á árs­reikn­ing­um þeirra og segja áformin óá­sætt­an­leg með til­liti til mik­ill­ar skerðing­ar á sam­keppn­is­hæfni og fram­legð þess­ara sjáv­ar­út­vegs­fyr­ir­tækja. Slík­ur skort­ur á sam­keppn­is­hæfni kem­ur niður á end­ur­nýj­un á tækja­búnaði og fjár­fest­ingu í framþróun, ný­sköp­un og þjón­ustu­kaup­um. 

Skora á stjórn­völd að bregðast við

Þá lýs­ir stjórn­in því yfir að þrátt fyr­ir að frí­tekju­mark hafi verið hækkað falli sú hækk­un í raun niður vegna auk­ins þunga í gjald­töku á þorsk og ýsu í nýj­ustu breyt­ing­um frum­varps­ins. Stjórn­in krefst þess að mis­ræmi milli út­reikn­inga ráðuneyt­is og SFS verði gert skýrt til þess að hægt sé að treysta út­reikn­ing­um vegna áhrifa af frum­varp­inu.

Að lok­um skor­ar stjórn Vest­fjarðar­stofu á stjórn­völd að bregðast hratt við og end­ur­skoða enn frek­ar til­lögu sína um hækk­un á veiðigjaldi þannig að tekið verði til­lit til rétt­mætra áhyggja at­vinnu­lífs og sveit­ar­fé­laga á Vest­fjörðum. „Það er lág­marks­krafa að áhrif­in af hærra veiðigjaldi á sam­fé­lög á Vest­fjörðum verði könnuð með ít­ar­legri hætti áður en lengra er haldið,“ seg­ir í yf­ir­lýs­ing­unni.

mbl.is