Trump skipar raunveruleikastjörnu í sendinefnd

Poppkúltúr | 8. maí 2025

Trump skipar raunveruleikastjörnu í sendinefnd

Donald Trump Bandaríkjaforseti hefur skipað raunveruleikastjörnuna Siggy Flicker, sem er hvað þekktust fyrir þátttöku sína í sjónvarpsþáttaröðinni The Real Housewives of New Jersey, ásamt fjórum öðrum, í sérstaka sendinefnd, Holocaust Memorial Council. Nefndinni er falið að gera tillögur um með hvaða hætti skuli minnast helfararinnar og fórnarlamba hennar.

Trump skipar raunveruleikastjörnu í sendinefnd

Poppkúltúr | 8. maí 2025

Siggy Flicker er best þekkt fyrir þátttöku sína í The …
Siggy Flicker er best þekkt fyrir þátttöku sína í The Real Housewives of New Jersey. Samsett mynd

Don­ald Trump Banda­ríkja­for­seti hef­ur skipað raun­veru­leika­stjörn­una Siggy Flicker, sem er hvað þekkt­ust fyr­ir þátt­töku sína í sjón­varpsþáttaröðinni The Real Hou­sewi­ves of New Jers­ey, ásamt fjór­um öðrum, í sér­staka sendi­nefnd, Holocaust Memorial Council. Nefnd­inni er falið að gera til­lög­ur um með hvaða hætti skuli minn­ast helfar­ar­inn­ar og fórn­ar­lamba henn­ar.

Trump greindi frá þessu í færslu á sam­fé­lags­miðlasíðunni Truth Social á þriðju­dag.

„Þau eru öll mikl­ir stuðnings­menn Ísra­els og munu tryggja að við GLEYM­UM ALDREI. Til ham­ingju með alla!“ skrifaði Banda­ríkja­for­seti.

Þess­ir fimm nýju full­trú­ar, ásamt þeim sem Trump hafði þegar greint frá, koma í stað þeirra sem Joe Biden, fyrr­ver­andi for­seti Banda­ríkj­anna, skipaði í for­setatíð sinni, en Trump gaf þeim reisupass­ann í lok apr­íl­mánaðar.

Flicker, 57 ára ísra­elsk-am­er­ísk raun­veru­leika- og hlaðvarps­stjarna, spilaði stóra rullu í banda­rísku raun­veru­leikaserí­unni á ár­un­um 2016 til 2017. Hún kaus að yf­ir­gefa þætt­ina í lok átt­undu þátt­araðar vegna einelt­is.

Stjúp­son­ur Flicker, Tyler Campanella, er einn af þeim sem voru hand­tekn­ir í óeirðunum á Capitol Hill í Washingt­on þann 6. janú­ar 2021.

Hann var náðaður af Trump.

View this post on In­sta­gram

A post shared by Siggy Flicker (@siggy.flicker)

mbl.is