„Værum ekkert með opið ef það væri hættulegt“

„Værum ekkert með opið ef það væri hættulegt“

„Það er búin að vera mjög góð aðsókn, búið að spila einhverja nokkur þúsund hringi hjá okkur á þessum tæplega eina mánuði sem er búið að vera opið,“ segir Helgi Dan Steinsson, framkvæmdastjóri Golfklúbbs Grindavíkur, en aðsókn á golfvöll bæjarins er orðin svipuð og hún var árið 2023.

„Værum ekkert með opið ef það væri hættulegt“

Eldvirkni á Reykjanesskaga | 8. maí 2025

Mikil umferð hefur verið um golfvöllinn frá opnun.
Mikil umferð hefur verið um golfvöllinn frá opnun. mbllis/Eggert Jóhannesson

„Það er búin að vera mjög góð aðsókn, búið að spila ein­hverja nokk­ur þúsund hringi hjá okk­ur á þess­um tæp­lega eina mánuði sem er búið að vera opið,“ seg­ir Helgi Dan Steins­son, fram­kvæmda­stjóri Golf­klúbbs Grinda­vík­ur, en aðsókn á golf­völl bæj­ar­ins er orðin svipuð og hún var árið 2023.

„Það er búin að vera mjög góð aðsókn, búið að spila ein­hverja nokk­ur þúsund hringi hjá okk­ur á þess­um tæp­lega eina mánuði sem er búið að vera opið,“ seg­ir Helgi Dan Steins­son, fram­kvæmda­stjóri Golf­klúbbs Grinda­vík­ur, en aðsókn á golf­völl bæj­ar­ins er orðin svipuð og hún var árið 2023.

Golf­völl­ur­inn var opnaður aft­ur eft­ir vet­ur­inn 12. apríl en Helgi seg­ir að allt hafi gengið ljóm­andi vel.

„Það er búið að vera mikið rennirí og mik­il aukn­ing í klúbbn­um, sér­stak­lega í fólki af Reykjar­vík­ur­svæðinu. Þannig að við get­um ekki kvartað.“

Fólk var hrætt við að mæta

Spurður hvernig aðsókn­in sé sam­an­borið við fyr­ir hörm­ung­arn­ar sem hóf­ust í Grinda­vík 10. nóv­em­ber 2023 seg­ir Helgi:

„Við erum nán­ast á pari í meðlima­fjölda og erum að skríða í þess­ar töl­ur sem við vor­um í 2023 yfir gesti sem eru að koma til okk­ar. Fólk er orðið til­búið að koma.“

Hann seg­ir að það sé breyt­ing frá sumr­inu í fyrra en þá hafi fólk verið smeykt við að koma og lít­il um­ferð verið um völl­inn.

„Við náðum að opna völl­inn 12. júní í fyrra eft­ir að hann fékk þessa skoðun sem þurfti til að opna en það dugði samt ekki til þess að fá fólk á staðinn, að allt hafði verið skoðað til hlít­ar.“

Helgi Dan Steinsson, framkvæmdastjóri Golfklúbbs Grindavíkur.
Helgi Dan Steins­son, fram­kvæmda­stjóri Golf­klúbbs Grinda­vík­ur.

Nei­kvætt um­tal hafði áhrif

Spurður hvað gæti valdið því að fólk sé til­búið að koma núna nefn­ir Helgi að mikið nei­kvætt um­tal um ástandið í Grinda­vík fyr­ir ári hafi lík­lega haft áhrif.

„Það virðist vera ein­hver smá hug­ar­fars­breyt­ing hjá fólki og menn til­bún­ir að taka slag­inn og koma,“ seg­ir Helgi og bæt­ir við að gest­ir sem hafi loks­ins komið eft­ir að hafa ekki þorað það í ein­hvern tíma segi all­ir það sama:

„Þegar þeir sjá að það er allt í góðu lagi skilja þeir ekk­ert í því af hverju þeir hafi ekki bara komið til okk­ar fyr­ir löngu.“

Golfar­arn­ir eru þá ekk­ert ótta­slegn­ir?

„Nei nei, af og frá! Enda er ekk­ert að ótt­ast hérna. Við vær­um ekk­ert með opið ef það væri hættu­legt.“

„Það verður mik­il hátíð“

Aðspurður seg­ir Helgi viðbúið að meira líf fær­ist í bæ­inn í sum­ar þegar Grind­vík­ing­ar kom­ast í sum­ar­frí og geta þá farið að heim­sækja bæ­inn í meira mæli. Þangað til er samt nóg að gera.

„Núna erum við á fullu að und­ir­búa fót­bolta­leik sem verður á laug­ar­dag­inn. Golf­klúbbur­inn sér um alla um­hirðu á knatt­spyrnu­völl­um í Grinda­vík þannig að núna erum við að und­ir­búa það.“

Um er að ræða fyrsta heima­leik­inn í Grinda­vík í 18 mánuði og til­hlökk­un­in sam­kvæmt því.

„Við hlökk­um mikið til, það er mik­il stemn­ing hjá Grind­vík­ing­um fyr­ir því að mæta á völl­inn og það verður mik­il hátíð hérna á laug­ar­dag­inn.“

mbl.is