Ingibjörg: Stress hjá stjórnarflokkunum

Alþingi | 9. maí 2025

Ingibjörg: Stress hjá stjórnarflokkunum

„Þetta er enginn fyrirvari á þessu. Hún boðar til þessa fundar með um sólarhrings fyrirvara. Maður upplifir svolítið stress hjá stjórnarflokkunum. Að þeim finnist þeir vera að missa tímalínuna til að koma öllum málum í gegn fyrir sumarfrí.“

Ingibjörg: Stress hjá stjórnarflokkunum

Alþingi | 9. maí 2025

Ingibjörg Isaksen, þingflokksformaður Framsóknarflokksins.
Ingibjörg Isaksen, þingflokksformaður Framsóknarflokksins. mbl.is/Eggert Jóhannesson

„Þetta er eng­inn fyr­ir­vari á þessu. Hún boðar til þessa fund­ar með um sól­ar­hrings fyr­ir­vara. Maður upp­lif­ir svo­lítið stress hjá stjórn­ar­flokk­un­um. Að þeim finn­ist þeir vera að missa tíma­lín­una til að koma öll­um mál­um í gegn fyr­ir sum­ar­frí.“

„Þetta er eng­inn fyr­ir­vari á þessu. Hún boðar til þessa fund­ar með um sól­ar­hrings fyr­ir­vara. Maður upp­lif­ir svo­lítið stress hjá stjórn­ar­flokk­un­um. Að þeim finn­ist þeir vera að missa tíma­lín­una til að koma öll­um mál­um í gegn fyr­ir sum­ar­frí.“

Þetta seg­ir Ingi­björg Isak­sen, þing­flokks­formaður Fram­sókn­ar­flokks­ins.

Þór­unn Svein­bjarn­ar­dótt­ir, for­seti Alþing­is, tók þá ákvörðun eft­ir fund for­sæt­is­nefnd­ar í dag að breyta starfs­áætl­un þings­ins og boða til þing­fund­ar á morg­un, laug­ar­dag, svo ljúka megi fyrstu umræðu um veiðigjald. 

„Það sem mér finnst kannski al­var­leg­ast í þessu er að við sett­umst niður með for­seta í vik­unni þar sem hún talaði um mik­il­vægi þess að koma sölu Íslands­banka á dag­skrá.

Auðvitað er dag­skrár­valdið hjá for­seta en það var gert sam­komu­lag samt sem áður um að fresta umræðu um veiðigjaldið, sem stjórn­ar­liðar voru bún­ir að taka virk­an þátt í líka.

Það var gert sam­komu­lag við for­seta um að sal­an á Íslands­banka væri sett á dag­skrá á miðviku­dag, við mynd­um ljúka þeirri umræðu svo hægt væri að klára það mál en svo myndi veiðigjaldið halda áfram á fimmtu­dag.

Sam­komu­lagið var um að þing­fundi yrði lokið á fimmtu­degi á miðnætti en síðan kem­ur í ljós í gær­kvöldi að sam­komu­lagið er brotið.“

Auðvelt að klára á mánu­dag­inn

Ingi­björg seg­ir það hafa verið brotið þrátt fyr­ir mál­efna­lega umræðu og þrátt fyr­ir að rök stjórn­ar­liða og ráðherra fyr­ir stutt­um sam­ráðstíma gagn­vart veiðigjald­inu í sam­ráðsgátt séu að gefa eigi mál­inu tíma og and­rými til um­fjöll­un­ar í þing­inu.

Furðar þing­flokks­formaður Fram­sókn­ar­flokks­ins sig á því að svo sé verið að gagn­rýna og saka stjórn­ar­and­stöðuna um málþóf þegar málið sé enn í fyrstu umræðu og hún sjálf t.d. per­sónu­lega ein­ung­is búin að flytja sína 15 mín­útna ræðu í einu stærsta máli kjör­tíma­bils­ins.

„Þetta er mjög skrítið og það að for­seti boði til fund­ar og ákveði að hafa auka­fund á laug­ar­degi, þegar það er auðvelt reikn­ings­dæmi að sjá hversu mik­il umræða er eft­ir miðað við fjölda þeirra sem eru í stjórn­ar­and­stöðu og hversu marg­ir eiga ræður eft­ir.

Það finnst mér langt gengið því það hefði verið auðvelt að klára þessa umræðu á mánu­dag­inn,“ seg­ir Ingi­björg.

Mjög skrít­in töl­fræði

Breyt­ing­ar sem þess­ar á starfs­áætl­un eru vana­lega ekki gerðar fyrr en lengra er liðið á lög­gjaf­arþingið. Nú er meira en mánuður til þing­frest­un­ar sam­kvæmt starfs­áætl­un. Hvað tel­ur þú að ráði för?

„Ég skal ekki segja. Það er al­veg aug­ljóst að tím­aramm­inn er skamm­ur. Þetta mál mun alltaf þurfa a.m.k. tvær vik­ur í um­sagn­ar­ferli og svo á eft­ir að fá um­sagnaraðila inn á fund nefnd­ar.

Kannski vilja þau sýna fram á að rík­is­stjórn­in láti verk­in tala en miðað við fjölda mála sem eru inni í nefnd­um, fjölda mála sem á eft­ir að mæla fyr­ir og fjölda þeirra sem eru kom­in í gegn og orðin að lög­um er þetta mjög skrít­in töl­fræði því allt þarf þetta að eiga sína lýðræðis­legu umræðu.“

Ekki þægi­legt fyr­ir lands­byggðarþing­menn

Ekki er al­gengt að þing­störf fari fram um helg­ar og hafði Ingi­björg sjálf gert ráðstaf­an­ir um helg­ina. Svona breyt­ing­ar geta varla verið þægi­leg­ar fyr­ir ykk­ur lands­byggðarþing­menn­ina?

„Nei, ég fékk vara­mann inn fyr­ir mig á nefnd­ar­fund eft­ir há­degi í dag því eldri borg­ar­ar á Ak­ur­eyri voru bún­ir að boða þing­menn kjör­dæm­is­ins til fund­ar.

Ég ætlaði svo að verja helg­inni með fjöl­skyld­unni minni og mann­in­um mín­um fyr­ir norðan en svo kom þessi staða upp og ég þarf að bruna suður,“ seg­ir Ingi­björg og bæt­ir við að frek­ari breyt­ing­ar á starfs­áætl­un þings­ins séu í far­vatn­inu, nefnd­ar­fund­ir 30. maí sem sé dag­inn eft­ir frí­dag.

mbl.is