Mikið fjölmenni var við opnun íslenska skálans á 19. alþjóðlegu arkitektasýningu Feneyjatvíæringsins í vikunni en þetta er í fyrsta sinn sem Ísland tekur þátt.

Í sýningarteymi Feneyjatvíæringsins eru Arnhildur Pálmadóttir sýningarstjóri og arkitekt, Arnar Skarphéðinsson arkitekt, Björg Skarphéðinsdóttir hönnuður og Sukanya Mukherjee arkitekt frá s. ap arkitektum, Andri Snær Magnason rithöfundur og Jack Armitage tónlistarmaður og margmiðlunarhönnuður. Um grafíska hönnun sér hönnunarstofan Studio Studio.
Arnhildur Pálmadóttir hlaut Umhverfisverðlaun Norðurlandaráðs 2024 og nýtir margra ára rannsóknir á arkitektúr og umhverfismálum í verkefninu. „Arkitektúr á að vera og verður að vera afl umbreytingar og nýrrar hugsunar. Lavaforming er dæmi um arkitektúr sem vinnur með náttúrunni en ekki á móti henni. Verkefnið sýnir mögulega framtíð sem er tæknilega raunhæf og kröftug á skapandi hátt,“ er haft eftir henni í tilkynningu.