Vilja að málið gangi til efnahags- og viðskiptanefndar

Alþingi | 10. maí 2025

Vilja að málið gangi til efnahags- og viðskiptanefndar

Hildur Sverrisdóttir, þingflokksformaður Sjálfstæðisflokksins, lagði til fyrir hönd stjórnarandstöðunnar á Alþingi í dag að frumvarp til laga um breytingu á lögum til veiðigjalda gangi til efnahags- og viðskiptanefndar í stað atvinnuveganefndar að lokinni fyrstu umræðu.

Vilja að málið gangi til efnahags- og viðskiptanefndar

Alþingi | 10. maí 2025

Hildur Sverrisdóttir, þingflokksformaður Sjálfstæðisflokksins.
Hildur Sverrisdóttir, þingflokksformaður Sjálfstæðisflokksins. mbl.is/Árni Sæberg

Hild­ur Sverr­is­dótt­ir, þing­flokks­formaður Sjálf­stæðis­flokks­ins, lagði til fyr­ir hönd stjórn­ar­and­stöðunn­ar á Alþingi í dag að frum­varp til laga um breyt­ingu á lög­um til veiðigjalda gangi til efna­hags- og viðskipta­nefnd­ar í stað at­vinnu­vega­nefnd­ar að lok­inni fyrstu umræðu.

Lagði hún til að at­kvæðagreiðsla þess efn­is færi fram í sam­ræmi við þing­skap­a­lög.

Boðað var til fund­ar á Alþingi klukk­an 10 í morg­un þar sem fyrstu umræðu um frum­varp at­vinnu­vegaráðherra um veiðigjöld var fram­haldið.

„Þó að póli­tík þess­ar­ar rík­is­stjórn­ar sé ansi mik­il í frös­um og mikið tal henn­ar um ein­hvers kon­ar leiðrétt­ingu, þó það sé mál­um blandið hvað sé verið að leiðrétta, þá er málið aug­ljós­lega um skatta enda seg­ir það mjög skýrt í frum­varp­inu sjálfu,“ seg­ir Hild­ur í sam­tali við mbl.is.

Hún tel­ur rétt að málið fari frek­ar til efna­hags- og viðskipta­nefnd­ar sem sé sú nefnd sem hafi með skatta­mál rík­is­ins að gera.

Hild­ur seg­ir að þegar fyrstu umræðu um frum­varp at­vinnu­vegaráðherra lýk­ur á Alþingi í dag leggi hún til að at­kvæðagreiða fari fram í sam­ræmi við 39. gr. þing­skap­a­laga.

mbl.is