Öldur virðist lægja í tollastríðinu á Kyrrahafi

Öldur virðist lægja í tollastríðinu á Kyrrahafi

Fjármálaráðherra Bandaríkjanna segir umtalsverðan árangur hafa náðst í formlegum tollaviðræðum við Kína um helgina. Markmið viðræðnanna var að draga úr viðskiptaspennu ríkjanna sem snöggjókst þegar Donald Trump Bandaríkjaforseti lýsti tollastríði á hendur Kínverjum.

Öldur virðist lægja í tollastríðinu á Kyrrahafi

Donald Trump Bandaríkjaforseti | 11. maí 2025

Scott Bessent, fjármálaráðherra Bandaríkjanna, og Jamieson Greer viðskiptaráðherra, ganga út …
Scott Bessent, fjármálaráðherra Bandaríkjanna, og Jamieson Greer viðskiptaráðherra, ganga út til fjölmiðla til að segja frá „umtalsverðum árangri“ fundarins með Kínverjum.

Fjár­málaráðherra Banda­ríkj­anna seg­ir um­tals­verðan ár­ang­ur hafa náðst í form­leg­um tollaviðræðum við Kína um helg­ina. Mark­mið viðræðnanna var að draga úr viðskipta­spennu ríkj­anna sem snög­gjókst þegar Don­ald Trump Banda­ríkja­for­seti lýsti tolla­stríði á hend­ur Kín­verj­um.

Fjár­málaráðherra Banda­ríkj­anna seg­ir um­tals­verðan ár­ang­ur hafa náðst í form­leg­um tollaviðræðum við Kína um helg­ina. Mark­mið viðræðnanna var að draga úr viðskipta­spennu ríkj­anna sem snög­gjókst þegar Don­ald Trump Banda­ríkja­for­seti lýsti tolla­stríði á hend­ur Kín­verj­um.

„Ég er ánægður að geta greint frá því að við höf­um náð um­tals­verðum ár­angri milli Banda­ríkj­anna og Kína í þess­um afar mik­il­vægu viðskiptaviðræðum,“ sagði Scott Bessent fjár­málaráðherra við blaðamenn í Genf í Sviss í dag, en þar fóru viðræðurn­ar fram í dag og í gær.

Þetta var fyrsti form­legi fund­ur­inn milli þjóðanna síðan Banda­rík­in und­ir stjórn Don­alds Trump for­seta hækkuðu tolla á kín­versk­ar vör­ur í 145%, sem Kína svaraði með 125% toll­um á banda­rísk­ar vör­ur.

Ágrein­ing­ur­inn „ekki eins mik­ill og kannski var talið“.

Bessent ekki við spurn­ing­um frá fjöl­miðlum en lofaði að ít­ar­leg skýrsla um niður­stöður viðræðnanna myndi birt­ast á morg­un, mánu­dag.

Einnig tóku þátt í viðræðunum Jamie­son Greer, viðskiptaráðherra Banda­ríkj­anna, og He Lifeng, vara­for­sæt­is­ráðherra Kína.

Scott Bessent, fjármálaráðherra Bandaríkjanna, og Jamieson Greer viðskiptaráðherra ávarpa fjölmiðla …
Scott Bessent, fjár­málaráðherra Banda­ríkj­anna, og Jamie­son Greer viðskiptaráðherra ávarpa fjöl­miðla í Sviss fyrr í dag. AFP

Tjáði Greer fjöl­miðlum í dag að ágrein­ing­ur Banda­ríkj­anna og Kína „væri ekki eins mik­ill og kannski var talið“.

Don­ald Trump Banda­ríkja­for­seti hef­ur einnig tjáð sig um viðræðurn­ar á miðli sín­um Truth Social, þar sem hann seg­ir þær hafa verið „mjög góðar“ og lýs­ir þeim jafn­framt sem „al­gjörri end­urstill­ingu sem um var samið á vin­gjarn­leg­an en upp­byggi­leg­an hátt“.

Viðræðurn­ar fara fram á meðan bæði lönd­in glíma við efna­hags­leg­ar áskor­an­ir. Banda­rík­in hafa orðið fyr­ir sam­drætti í hag­kerf­inu, en Kína hef­ur reynt að örva hag­kerfið sitt, meðal ann­ars með lækk­un vaxta og lausa­fjár­út­gáfu, til að bregðast við áhrif­um tolla­stríðsins.

mbl.is