Dómsmálaráðherra ekki kallaður á opinn fund

Dómsmálaráðherra ekki kallaður á opinn fund

Ekki stendur til að kalla Þorbjörgu Sigríði Gunnlaugsdóttur dómsmálaráðherra á opinn fund stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar Alþingis vegna gagnaleka frá sérstökum saksóknara.

Dómsmálaráðherra ekki kallaður á opinn fund

Gagnastuldur og njósnir PPP | 12. maí 2025

Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir dómsmálaráðherra.
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir dómsmálaráðherra. mbl.is/Eyþór

Ekki stend­ur til að kalla Þor­björgu Sig­ríði Gunn­laugs­dótt­ur dóms­málaráðherra á op­inn fund stjórn­skip­un­ar- og eft­ir­lits­nefnd­ar Alþing­is vegna gagnaleka frá sér­stök­um sak­sókn­ara.

Ekki stend­ur til að kalla Þor­björgu Sig­ríði Gunn­laugs­dótt­ur dóms­málaráðherra á op­inn fund stjórn­skip­un­ar- og eft­ir­lits­nefnd­ar Alþing­is vegna gagnaleka frá sér­stök­um sak­sókn­ara.

Nefnd­in fundaði um málið í Smiðju Alþing­is í dag en Vil­hjálm­ur Árna­son, formaður nefnd­ar­inn­ar og þingmaður Sjálf­stæðis­flokks­ins, og María Rut Krist­ins­dótt­ir, vara­formaður nefnd­ar­inn­ar og þingmaður Viðreisn­ar, ræddu málið við blaðamann að fundi lokn­um.

„Við rædd­um þessi mál og hvernig þau geta komið til nefnd­ar­inn­ar og við erum aðallega að ein­beita okk­ur að því hvernig borg­ar­inn geti treyst því að sinna rétt­inda sé gætt við fram­kvæmd rétt­ar­vörslu­kerf­is­ins,“ seg­ir Vil­hjálm­ur.

Mik­il­vægt að hafa frið

Rík­is­sak­sókn­ari hef­ur falið lög­regl­unni á Suður­landi að rann­saka meint brot er varða um­fangs­mik­inn gagnastuld úr kerf­um sér­staks sak­sókn­ara fyr­ir rúm­um ára­tug.

Nefnd um eft­ir­lit með lög­reglu hef­ur einnig tekið upp málið og verður að telj­ast lík­legt að það verði rætt á Alþingi í dag.

„Við erum ekki að fara að rann­saka ein­hver mál sjálf. Við erum bara að hafa eft­ir­lit með því að fram­kvæmd­in sé eft­ir lög­um og regl­um,“ seg­ir Vil­hjálm­ur.

„Það er svo mik­il­vægt að þeir sem starfa í rétt­ar­vörslu­kerf­inu í dag fái frið til þess. Við telj­um að um leið og al­menn­ing­ur fái þetta á hreint, það auðveldi þau störf.“

Unnið að mál­inu á næstu fund­um

Vil­hjálm­ur seg­ir að nefnd­in sé nú að afla sér upp­lýs­inga um málið og er reiknað með því að unnið verði að mál­inu á fund­um nefnd­ar­inn­ar á miðviku­dag­inn og föstu­dag­inn.

Hann seg­ir að næstu skref séu meðal ann­ars að fá dóms­málaráðherra og aðra sem geta hjálpað nefnd­inni til að fá yf­ir­sýn yfir málið til þess að upp­lýsa nefnd­ina að stöðu mála.

Ætlið þið að boða dóms­málaráðherra á op­inn fund?

„Ekki op­inn fund, ekki til þess að byrja með alla veg­ana,“ seg­ir Vi­hjálm­ur.

Vilhjálmur Árnason, formaður stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar Alþingis, og María Rut …
Vil­hjálm­ur Árna­son, formaður stjórn­skip­un­ar- og eft­ir­lits­nefnd­ar Alþing­is, og María Rut Krist­ins­dótt­ir, vara­formaður nefnd­ar­inn­ar. mbl.is/​Karítas

Horfa minna í bak­sýn­is­speg­il­inn

María Rut seg­ir að nefnd­ar­menn hafi all­ir verið sam­mála um næstu skref og að vanda verði til verka.

„Það var mjög góð umræða í nefnd­inni og við öll sam­mála um að vanda okk­ur og horfa svo­lítið fram á veg­inn og minna í bak­sýn­is­speg­il­inn,“ seg­ir María Rut.

Eitt af því sem nefnd­in ætl­ar að kanna er „hvort að staðan í dag sé ekki bara í góðum mál­um“, að sögn Vil­hjálms.

Mikið vatn hafi runnið til sjáv­ar síðan meint­ur gagnastuld­ur var en nefnd­in vilji ganga úr skugga um að við fram­kvæmd rétt­ar­vörslu­kerf­is­ins í dag séu borg­ara­leg rétt­indi tryggð.

mbl.is