Finnast áfengisdauð á víðavangi undir morgun

Dagmál | 12. maí 2025

Finnast áfengisdauð á víðavangi undir morgun

Rúna Ágústsdóttir, áfengis- og vímuefnaráðgjafi í Foreldrahúsi, hefur þungar áhyggjur af umfangi og þróun áfengisneyslu á meðal barna og ungmenna hér á landi. Segir hún vafasamt hversu algengt vandamál ölvunar- og áhættudrykkja er innan þess hóps sem leitað hefur til Foreldrahúss síðustu misseri.  

Finnast áfengisdauð á víðavangi undir morgun

Dagmál | 12. maí 2025

Video Player is loading.
Current Time 0:00
Duration 0:00
Loaded: 0%
Stream Type LIVE
Remaining Time 0:00
 
1x
  • Chapters
  • descriptions off, selected
  • subtitles off, selected
    • Quality

    Rúna Ágústs­dótt­ir, áfeng­is- og vímu­efnaráðgjafi í For­eldra­húsi, hef­ur þung­ar áhyggj­ur af um­fangi og þróun áfeng­isneyslu á meðal barna og ung­menna hér á landi. Seg­ir hún vafa­samt hversu al­gengt vanda­mál ölv­un­ar- og áhættu­drykkja er inn­an þess hóps sem leitað hef­ur til For­eldra­húss síðustu miss­eri.  

    Rúna Ágústs­dótt­ir, áfeng­is- og vímu­efnaráðgjafi í For­eldra­húsi, hef­ur þung­ar áhyggj­ur af um­fangi og þróun áfeng­isneyslu á meðal barna og ung­menna hér á landi. Seg­ir hún vafa­samt hversu al­gengt vanda­mál ölv­un­ar- og áhættu­drykkja er inn­an þess hóps sem leitað hef­ur til For­eldra­húss síðustu miss­eri.  

    „Þau drekka bara sterkt áfengi. Drekka bara landa eða vod­ka.“

    Ekki bjór?

    „Nei, nei, nei, ekki bjór. Það er bara þetta sterka áfengi. Og af hverju gera þau það? Jú þau eru sam­mála því sem þeim hef­ur verið kennt að þá fá þau mest fyr­ir pen­ing­ana. Þannig að þau fá mesta áfeng­is­magnið fyr­ir pen­ing­ana,“ seg­ir Rúna og bend­ir á hætt­una sem get­ur skap­ast við kring­um­stæður sem þess­ar.

    „Þau verða fljótt full því þau blanda yf­ir­leitt aldrei neinu út í áfengið held­ur drekka það bara „dry“ og vilja bara gleyma sér. Verða mjög drukk­in og þarna skap­ast stór­hættu­legt ástand.“

    Áfeng­is­dauð á göt­um úti

    Veru­lega óá­byrg neyslu­hegðun ung­menna er eitt­hvað sem rat­ar inn á borð hjá For­eldra­húsi á hverj­um degi. Rúna seg­ir mý­mörg dæmi um að áfeng­isneysla grunn­skóla­barna hafi farið úr bönd­un­um og leitt til áfeng­is­dauða á göt­um úti, áfengiseitr­ana og inn­lagna á sjúkra­hús. 

    „Það eru mjög ung­ir ung­ling­ar sem eru að gera þetta sem að svo finn­ast kannski nokkr­um hús­um frá heim­ili sínu klukk­an sex að morgni því þeir hafa dáið ein­hvers staðar,“ seg­ir Rúna sem sér­hæf­ir sig í meðferðar- og úrræðavinnu með ung­menn­um sem eiga við áfeng­is-, vímu­efna- og til­finn­inga­vanda að etja og for­eldr­um þeirra.

    „Auðvitað er þetta á all­an hátt hættu­legt. For­eldr­ar hafa komið til okk­ar eft­ir að börn­in þeirra hafa verið lögð inn á spít­ala, verið með áfengiseitran­ir og alls kon­ar,“ lýs­ir Rúna ástand­inu.

    „Og sko, ég er að tala um börn í grunn­skóla. Þau geta al­veg verið kom­in þangað.“

    Smelltu á hlekk­inn hér að neðan til að nálg­ast viðtalið við Rúnu í heild sinni.

    mbl.is