Trump íhugar að vera viðstaddur fundinn

Úkraína | 12. maí 2025

Trump íhugar að vera viðstaddur fundinn

Donald Trump, forseti Bandaríkjanna, íhugar að fljúga til Tyrklands til að vera viðstaddur mögulegan fund Volodimír Selenskí Úkraínuforseta og Vladmír Pútín Rússlandsforseta í Istanbúl á fimmtudag. Hann telur að Rússar muni samþykkja 30 daga vopnahlé.

Trump íhugar að vera viðstaddur fundinn

Úkraína | 12. maí 2025

Trump hvatti Úkraínumenn til að samþykkja boð Pútín um beinar …
Trump hvatti Úkraínumenn til að samþykkja boð Pútín um beinar samningaviðræður. AFP/Jim Watson

Don­ald Trump, for­seti Banda­ríkj­anna, íhug­ar að fljúga til Tyrk­lands til að vera viðstadd­ur mögu­leg­an fund Volodimír Selenskí Úkraínu­for­seta og Vla­dmír Pútín Rúss­lands­for­seta í Ist­an­búl á fimmtu­dag. Hann tel­ur að Rúss­ar muni samþykkja 30 daga vopna­hlé.

Don­ald Trump, for­seti Banda­ríkj­anna, íhug­ar að fljúga til Tyrk­lands til að vera viðstadd­ur mögu­leg­an fund Volodimír Selenskí Úkraínu­for­seta og Vla­dmír Pútín Rúss­lands­for­seta í Ist­an­búl á fimmtu­dag. Hann tel­ur að Rúss­ar muni samþykkja 30 daga vopna­hlé.

„Ég er að hugsa um að fljúga þangað. Það er mögu­leiki á því, hugsa ég, ef ég tel lík­ur á að eitt­hvað ger­ist,“ sagði Trump við blaðamenn fyrr í dag. Hann hafði áður hvatt Úkraínu­menn til að samþykkja til­lögu Pútín um bein­ar viðræður.

„Ég held að fund­ur Rússa og Úkraínu­manna í Tyrklandi á fimmtu­dag geti skilað já­kvæðum niður­stöðum, og ég geri ráð fyr­ir að báðir leiðtog­arn­ir mæti,“ sagði Trump jafn­framt.

Lagði til bein­ar samn­ingaviðræður

Pútín lagði það til í ræðu í Kreml í gær­morg­un að bein­ar samn­ingaviðræður á milli Rúss­lands og Úkraínu yrðu haldn­ar í Ist­an­búl á næstu dög­um. Hann minnt­ist þó ekk­ert á til­lögu Evr­ópu­ríkja um 30 daga vopna­hlé, sem hefði þá átt að hefjast í dag.

Selenskí þáði boð Pútíns og skrifaði í færslu á sam­fé­lags­miðlin­um X að hann biði eft­ir löngu og var­an­legu vopna­hléi.

Trump var spurður út í það hvort hann myndi beita Rússa refsiaðgerðum ef Pútín samþykkti ekki 30 daga vopna­hlé. Hann svaraði því ekki beint en sagðist hafa þá til­finn­ingu að Rúss­ar myndu samþykkja það.

Recep Tayyip Er­dog­an, for­seti Tyrk­lands, sagði í gær að „sögu­leg­um vendipunkti“ væri náð í að binda enda á inn­rás­ar­stríð Rússa og að Tyrk­land væri til­búið að hýsa viðræðurn­ar.

mbl.is