Frakka vilja „kæfa“ efnahag Rússlands

Úkraína | 14. maí 2025

Frakka vilja „kæfa“ efnahag Rússlands

Evrópa og Bandaríkin verða að standa saman í því að „kæfa“ efnahag Rússlands. Þetta sagði utanríkisráðherra Frakklands, Jean-Noël Barrot, í samtali við frönsku sjónvarpsstöðina BFMTV í dag.

Frakka vilja „kæfa“ efnahag Rússlands

Úkraína | 14. maí 2025

Utanríkisráðherra Frakklands, Jean-Noël Barrot. AFP/ Thomas Traasdahl / Ritzau Scanpix
Utanríkisráðherra Frakklands, Jean-Noël Barrot. AFP/ Thomas Traasdahl / Ritzau Scanpix AFP

Evr­ópa og Banda­rík­in verða að standa sam­an í því að „kæfa“ efna­hag Rúss­lands. Þetta sagði ut­an­rík­is­ráðherra Frakk­lands, Jean-Noël Barrot, í sam­tali við frönsku sjón­varps­stöðina BF­MTV í dag.

Evr­ópa og Banda­rík­in verða að standa sam­an í því að „kæfa“ efna­hag Rúss­lands. Þetta sagði ut­an­rík­is­ráðherra Frakk­lands, Jean-Noël Barrot, í sam­tali við frönsku sjón­varps­stöðina BF­MTV í dag.

Frakk­ar kalla eft­ir því að Vest­ur­lönd beiti efna­hagsþving­un­um. Það auki þrýst­ing á Vla­dmír Pútín Rúss­lands­for­seta til að binda endi á inn­ráð Rússa í Úkraínu.

Evr­ópu­sam­bandið samþykkti í dag nýtt sam­komu­lag um efna­hagsþving­an­ir gegn Rúss­um. Barrot benti á að fyrri aðgerðir hefðu ekki borið ár­ang­ur. Því þyrfti að ganga enn lengra. Hann hef­ur lýst því yfir að hann ætli að hitta Linds­ey Gra­ham, öld­ung­ar­deild­arþing­mann í Banda­ríkj­un­um, í Tyrklandi á morg­un til að ræða málið frek­ar.

Þar verður Selenskí stadd­ur til að ræða frið í Úkraínu við ráðamenn í Evr­ópu, Banda­ríkj­un­um og Rússlandi. Enn er óvíst hvort Pút­in eða Don­ald Trump, Banda­ríkja­for­seti, mæti. 

mbl.is