Bandaríski stórleikarinn Robert De Niro barðist við tárin þegar hann var heiðraður á opnunarkvöldi kvikmyndahátíðarinnar í Cannes á þriðjudagskvöldið.

Góðvinur og samstarfsfélagi De Niro, verðlaunaleikarinn Leonardo DiCaprio, afhenti honum heiðurspálmann (e. Honorary Palme d'Or) við mikinn fögnuð viðstaddra.
DeNiro gekk rauða dregilinn ásamt sambýliskonu sinni til rúmlega þriggja ára, dansaranum Tiffany Chen. Parið á eina unga dóttur, Giu Virginiu, sem kom í heiminn í apríl 2023, þegar leikarinn var 79 ára gamall.
DeNiro er margverðlaunaður leikari og á að baki farsælan leikferil. Hann hreppti Óskarsverðlaunin fyrir leik sinn í kvikmyndunum Raging Bull og The Godfather Part II, en hann hefur verið tilnefndur níu sinnum, nú síðast fyrir hlutverk sitt í kvikmyndinni Killers of the Flower Moon á síðasta ári.
Heiðurspálminn var veittur í fyrsta sinn árið 1955. Fyrstur til að hljóta þennan heiður var bandaríski leikstjórinn Delbert Mann.