Volodimír Selenskí Úkraínuforseti segir að viðræður á milli sendinefnda Úkraínu og Rússlands gætu hafist í kvöld eða á morgun.
Volodimír Selenskí Úkraínuforseti segir að viðræður á milli sendinefnda Úkraínu og Rússlands gætu hafist í kvöld eða á morgun.
Volodimír Selenskí Úkraínuforseti segir að viðræður á milli sendinefnda Úkraínu og Rússlands gætu hafist í kvöld eða á morgun.
„Sendinefndin hefur verið send. Sendinefnd Tyrklands er tilbúin [...] þetta gæti orðið í dag, þetta gæti orðið á morgun,“ sagði Selenskí á blaðamannafundi í Ankara í Tyrklandi í dag.
Varnarmálaráðherra Úkraínu, Rustem Úmerov, mun leiða úkraínsku sendinefndina, að sögn Selenskís. Mun hún hafa umboð til þess að ræða mögulegt vopnahlé.
Ljóst er að Vladimír Pútín Rússlandsforseti mun ekki mæta til viðræðna en sendinefnd Rússa er sögð standa af lægra settum erindrekum.
Í samtali við blaðamenn í Ankara í morgun gagnrýndi Selenskí rússnesku sendinefndina og sagðist honum finnast sem Rússland hafi sent nefnd sem mögulega væri ekki með umboð til þess að taka nokkrar ákvarðanir sjálf í viðræðunum.
Segir hann jafnframt að þrátt fyrir að Pútín hafi stungið upp á friðarviðræðunum hafi hann ekki mætt í eigin persónu.
Selenskí segir að Pútín sé ekki alvara um viðræðurnar og tekur fram að hann sé enn reiðubúinn til beinna viðræðna á milli forsetanna tveggja.
„Því miður taka þeir ekki samningaviðræðurnar nógu alvarlega,“ sagði Selenskí við blaðamenn í Ankara, áður en hann ávarpaði Pútín: „Ég er hér, við erum tilbúin í beinar viðræður.“
Vladimír Medinskí, yfirmaður rússnesku sendinefndarinnar, sér viðræðurnar sem framhald af misheppnuðum friðarviðræðum ríkjanna árið 2022 í Istanbúl.
Tekur hann fram að hann telji rússnesku sendinefndina hafa nægilegt umboð til þess að leiða viðræðurnar fyrir land sitt.
„Við lítum á þessar viðræður sem framhald af friðarviðræðunum í Istanbúl sem úkraínska hliðin sleit því miður,“ sagði Medinskí við blaðamenn í dag. Bætti hann við að rússneska sendinefndin muni „leita að mögulegum lausnum og snertiflötum“.