Sigga Ózk hélt upp á afmælið með stæl

Instagram | 15. maí 2025

Sigga Ózk hélt upp á afmælið með stæl

Söngkonan Sigríður Ósk Hrafnkelsdóttir, betur þekkt undir listamannsnafninu Sigga Ózk, blés til heljarinnar veislu í tilefni af 26 ára afmæli sínu nú á dögunum, en söngkonan varð árinu eldri þann 15. apríl síðastliðinn.

Sigga Ózk hélt upp á afmælið með stæl

Instagram | 15. maí 2025

Sigga Ózk var í góðum gír.
Sigga Ózk var í góðum gír. Skjáskot/Instagram

Söng­kon­an Sig­ríður Ósk Hrafn­kels­dótt­ir, bet­ur þekkt und­ir lista­manns­nafn­inu Sigga Ózk, blés til helj­ar­inn­ar veislu í til­efni af 26 ára af­mæli sínu nú á dög­un­um, en söng­kon­an varð ár­inu eldri þann 15. apríl síðastliðinn.

Söng­kon­an Sig­ríður Ósk Hrafn­kels­dótt­ir, bet­ur þekkt und­ir lista­manns­nafn­inu Sigga Ózk, blés til helj­ar­inn­ar veislu í til­efni af 26 ára af­mæli sínu nú á dög­un­um, en söng­kon­an varð ár­inu eldri þann 15. apríl síðastliðinn.

Af­mæl­inu var að sjálf­sögðu fagnað með stæl og voru veislu­gest­ir hvatt­ir til að mæta í bleiku til heiðurs af­mæl­is­barn­inu, en lit­ur­inn er í miklu upp­á­haldi hjá því.

Fjöl­marg­ir vin­ir söng­kon­unn­ar fögnuðu deg­in­um með henni í bæn­um Lillehammer í Nor­egi þar sem Sigga Ózk er bú­sett, en hún stund­ar nám við Lillehammer Institu­te for Music Producti­on and Industries.

Sigga Ózk sýndi frá veislu­höld­un­um í færslu á In­sta­gram-síðu sinni í gær­dag og af mynd­um að dæma þá var mikið fjör og mikið skálað.

„PINK PARTY IN MY LILLEHAMMER with my limp­i­ans,“ skrifaði hún við færsl­una.

Sigga Ózk hef­ur verið á hraðri upp­leið í tón­list­ar­heim­in­um síðustu miss­er­in. Hún hef­ur tví­veg­is tekið þátt í Söngv­akeppni sjón­varps­ins og komst áfram í úr­slit í bæði skipt­in. Svo tal­setti hún hlut­verk bleiku norn­ar­inn­ar Glindu í söngv­amynd­inni Wicked á síðasta ári.

View this post on In­sta­gram

A post shared by 🎀 SIGGA ÓZK 🎀 (@sigga­ozk)

mbl.is