Að minnsta kosti 50 drepnir í nótt

Ísrael/Palestína | 16. maí 2025

Að minnsta kosti 50 drepnir í nótt

Að minnsta kosti 50 manns hafa verið drepnir á Gasasvæðinu frá því í gærkvöldi í árásum Ísraela. Tugir eru særðir, þar af eru konur og börn í meirihluta.

Að minnsta kosti 50 drepnir í nótt

Ísrael/Palestína | 16. maí 2025

Frá borginni Bait Lahia í norðurhluta Gasa í nótt.
Frá borginni Bait Lahia í norðurhluta Gasa í nótt. AFP

Að minnsta kosti 50 manns hafa verið drepn­ir á Gasa­svæðinu frá því í gær­kvöldi í árás­um Ísra­ela. Tug­ir eru særðir, þar af eru kon­ur og börn í meiri­hluta.

Að minnsta kosti 50 manns hafa verið drepn­ir á Gasa­svæðinu frá því í gær­kvöldi í árás­um Ísra­ela. Tug­ir eru særðir, þar af eru kon­ur og börn í meiri­hluta.

Að sögn al­manna­varna á svæðinu hafa árás­ir verið gerðar á íbúðar­hús á norðan­verðu Gasa­svæðinu frá miðnætti að staðar­tíma, eða klukk­an 21 að ís­lensk­um tíma.

Loft­árás­ir og dróna­árás­ir

Mohammed Sa­leh, fram­kvæmda­stjóri Al-Awda-sjúkra­húss­ins í borg­inni Jabalia, seg­ir sjúkra­húsið hafa tekið á móti 75 særðum í nótt sök­um loft­árása.

Íbúi í borg­inni Bait Lahia tjáði AFP-frétta­veit­unni að íbúðar­húsið við hlið hans hefði verið sprengt upp af ísra­elska hern­um meðan íbú­ar voru inni. Þá hefðu einnig verið gerðar árás­ir með drón­um.

„Mikið af fólki er að svelta“

Don­ald Trump Banda­ríkja­for­seti tjáði sig lít­il­lega um Gasa­svæðið við blaðamenn í nótt en hann er nú á ferðalagi um Persa­flóa­rík­in.

Sagði Trump að Banda­rík­in myndu „sjá um“ ástandið á svæðinu.

„Mikið af fólki er að svelta,“ bætti Banda­ríkja­for­set­inn við og vísaði þar til þess að tveir mánuðir eru síðan Ísra­el­ar hleyptu neyðar­vist­um inn í Gasa.

Þá hef­ur Mat­væla- og land­búnaðar­stofn­un Sam­einuðu þjóðanna sagt að land­búnaður á Gasa sé að hruni kom­inn.

Donald Trump Bandaríkjaforseti segir að Bandaríkin muni „sjá um“ ástandið …
Don­ald Trump Banda­ríkja­for­seti seg­ir að Banda­rík­in muni „sjá um“ ástandið á Gasa­svæðinu. AFP
mbl.is