„Gríðarlega gaman að fá tugþúsundir nýrra hluthafa“

„Gríðarlega gaman að fá tugþúsundir nýrra hluthafa“

„Fyrstu viðbrögð eru bara þakklæti og það er bara ótrúlega skemmtilegt hvað það var mikill áhugi. Maður fann aukin áhuga eftir því sem að leið á vikuna,“ segir Jón Guðni Ómarsson, bankastjóri Íslandsbanka.

„Gríðarlega gaman að fá tugþúsundir nýrra hluthafa“

Sala á hlut ríkisins í Íslandsbanka | 16. maí 2025

Jón Guðni Ómarsson, bankastjóri Íslandsbanka.
Jón Guðni Ómarsson, bankastjóri Íslandsbanka. mbl.is/Eyþór

„Fyrstu viðbrögð eru bara þakk­læti og það er bara ótrú­lega skemmti­legt hvað það var mik­ill áhugi. Maður fann auk­in áhuga eft­ir því sem að leið á vik­una,“ seg­ir Jón Guðni Ómars­son, banka­stjóri Íslands­banka.

Útboði á hlut­um í Íslands­banka lauk í gær og hef­ur verið greint frá að yfir 30.000 ein­stak­ling­ar hafi keypt í bank­an­um.

Hefði verið gam­an að fá er­lenda fjár­festa inn

Sam­kvæmt til­kynn­ingu fjár­málaráðuneyt­is­ins í morg­un skráði al­menn­ing­ur sig fyr­ir sam­tals 88,2 millj­örðum af 90,6 millj­örðum sem ríkið ákvað að selja. Það er því ljóst að aðeins lít­ill hluti mun fara til stærri fjár­festa eða fag­fjár­festa til að byrja með. 

Spurður hvort slík niðurstaða sé von­brigði seg­ir Jón Guðni svo ekki.

„Nei, nei. En að vissu leyti erum við nátt­úru­lega búin að eyða gríðarleg­um tíma í að hitta fjár­festa bæði inn­an­lands og er­lend­is og það hefði nú al­veg verið gam­an ef ein­hverj­ir af þeim hefðu getað fengið út­hlut­un. Við erum búin að hitta mikið af er­lend­um aðilum sem hefðu þá verið að koma nýir inn á markaðinn.“

„Út frá bank­an­um er þetta bara gríðarlega ánægju­legt og gam­an að sjá svona mikið traust til okk­ar. Það er gríðarlega gam­an að fá tugþúsund­ir nýrra hlut­hafa.“

mbl.is