Samfélagsmiðlastjarna drepin í beinni útsendingu

Poppkúltúr | 16. maí 2025

Samfélagsmiðlastjarna drepin í beinni útsendingu

Ung mexíkönsk samfélagsmiðlastjarna var skotin til bana þegar hún var að ræða við þúsundir fylgjenda sinna í beinni útsendingu á TikTok á þriðjudag.

Samfélagsmiðlastjarna drepin í beinni útsendingu

Poppkúltúr | 16. maí 2025

Valeria Marquez var 23 ára gömul.
Valeria Marquez var 23 ára gömul. Skjáskot/Instagram

Ung mexí­könsk sam­fé­lags­miðlastjarna var skot­in til bana þegar hún var að ræða við þúsund­ir fylgj­enda sinna í beinni út­send­ingu á TikT­ok á þriðju­dag.

Ung mexí­könsk sam­fé­lags­miðlastjarna var skot­in til bana þegar hún var að ræða við þúsund­ir fylgj­enda sinna í beinni út­send­ingu á TikT­ok á þriðju­dag.

Hin 23 ára gamla Val­er­ia Marqu­ez var stödd á vinnustaðnum sín­um, snyrti­stofu í borg­inni Za­pop­an í Mexí­kó, þegar maður, vopnaður byssu, gekk inn á stof­una, miðaði skot­vopn­inu að henni og tók í gikk­inn.

Marqu­ez, sem var afar vin­sæll áhrifa­vald­ur og með yfir 113 þúsund fylgj­end­ur á TikT­ok, lést sam­stund­is.

„Halló, ertu Val­er­ia?“

Upp­taka af árás­inni, sem var í mik­illi dreif­ingu á sam­fé­lags­miðlum, sýn­ir Marqu­ez sitja við borð á snyrti­stof­unni með bleikt tusku­dýr í fang­inu.

Hún heyr­ist segja: „Hann er að koma.“

Rödd karl­manns heyr­ist þá segja: „Halló, ertu Val­er­ia?“ Og hún svar­ar: „Já.“

Á því augna­bliki slekk­ur Marqu­ez á hljóðnem­an­um og nokkr­um sek­únd­um síðar er hún skot­in til bana.

Maður­inn sést ekki í mynd­band­inu.

Eng­inn grunaður

Sak­sókn­ara­embættið í borg­inni hef­ur eng­an grunaðan um verknaðinn að svo stöddu.

Rann­sókn á dauða Marqu­ez fer fram sam­kvæmt verklags­regl­um um kven­morð - morð á kon­um og stúlk­um af kyn­bundn­um ástæðum, en slík­um glæp­um hef­ur farið ört fjölg­andi í Mexí­kó síðastliðin ár.

 

mbl.is