„Við get­um ekki setið leng­ur þögul hjá“

Ísrael/Palestína | 16. maí 2025

„Við get­um ekki setið leng­ur þögul hjá“

„Frumkvæði þessa hóps og sá stuðningur við Palestínu sem fram kemur í yfirlýsingunni skiptir mjög miklu máli,“ er haft eftir Kristrúnu Frostadóttur forsætisráðherra í fréttatilkynningu sem Stjórnarráðið sendir frá sér og greinir frá undirritun sameiginlegrar yfirlýsingar sjö þjóðarleiðtoga vegna hörmunganna á Gasasvæðinu.

„Við get­um ekki setið leng­ur þögul hjá“

Ísrael/Palestína | 16. maí 2025

Sex þeirra forsætisráðherra er standa að yfirlýsingunni til ísraelskra stjórnvalda, …
Sex þeirra forsætisráðherra er standa að yfirlýsingunni til ísraelskra stjórnvalda, en á myndina vantar ráðherra Írlands sem ekki átti heimangengt. Ljósmynd/Aðsend

„Frum­kvæði þessa hóps og sá stuðning­ur við Palestínu sem fram kem­ur í yf­ir­lýs­ing­unni skipt­ir mjög miklu máli,“ er haft eft­ir Kristrúnu Frosta­dótt­ur for­sæt­is­ráðherra í frétta­til­kynn­ingu sem Stjórn­ar­ráðið send­ir frá sér og grein­ir frá und­ir­rit­un sam­eig­in­legr­ar yf­ir­lýs­ing­ar sjö þjóðarleiðtoga vegna hörm­ung­anna á Gasa­svæðinu.

„Frum­kvæði þessa hóps og sá stuðning­ur við Palestínu sem fram kem­ur í yf­ir­lýs­ing­unni skipt­ir mjög miklu máli,“ er haft eft­ir Kristrúnu Frosta­dótt­ur for­sæt­is­ráðherra í frétta­til­kynn­ingu sem Stjórn­ar­ráðið send­ir frá sér og grein­ir frá und­ir­rit­un sam­eig­in­legr­ar yf­ir­lýs­ing­ar sjö þjóðarleiðtoga vegna hörm­ung­anna á Gasa­svæðinu.

Eru það, auk Kristrún­ar, for­sæt­is­ráðherr­ar Nor­egs, Írlands, Spán­ar, Slóven­íu, Lúx­em­borg­ar og Möltu sem rita und­ir yf­ir­lýs­ing­una þar sem bent er á að tala lát­inna á Gasa sé nú kom­in yfir 50.000 manns í vær­ing­um Ísra­ela og palestínsku Ham­as-hryðju­verka­sam­tak­anna auk þess sem bú­ast megi við að þúsund­ir til viðbót­ar verði hung­ur­morða á kom­andi dög­um verði ekk­ert að gert.

Hvetja leiðtog­arn­ir sjö stjórn­völd í Ísra­el til að breyta stefnu sinni án taf­ar, stöðva hernaðaraðgerðir sína á Gasa og tryggja óheft aðgengi hjálp­ar­gagna mannúðarsam­taka inn á svæðið stríðshrjáða.

„Staðan á Gasa er hrylli­leg“

Það var Ísland sem átti frum­kvæðið að yf­ir­lýs­ing­unni og veitti fram­kvæmd­inni for­ystu auk Spán­ar og var leiðtoga­hóp­ur­inn kallaður sam­an fyr­ir at­beina ríkj­anna tveggja. Fylg­ir yf­ir­lýs­ing­in nú í kjöl­far sam­eig­in­legr­ar yf­ir­lýs­ing­ar ut­an­rík­is­ráðherra sex ríkja sem Þor­gerður Katrín Gunn­ars­dótt­ir ut­an­rík­is­ráðherra Íslands und­ir­ritaði og gef­in var út 7. maí, en þar höfnuðu ráðherr­arn­ir öll­um hug­mynd­um um brott­flutn­ing Palestínu­manna frá Gasa sem enda væri brot á alþjóðalög­um,

Kristrún Frosta­dótt­ir er um þess­ar mund­ir stödd í Tir­ana í Alban­íu þar sem hún fundaði með hinum leiðtog­un­um sex sem ræddu þá ógn­væn­legu stöðu er uppi væri á Gasa.

„Staðan á Gasa er hrylli­leg, hún versn­ar með hverj­um deg­in­um sem líður, og við get­um ekki setið leng­ur þögul hjá. Þetta er í fyrsta sinn sem yf­ir­lýs­ing er gef­in út á leiðtoga­stigi og það bend­ir til þess að afstaðan sé að breyt­ast. Ég bind von­ir við að þessi yf­ir­lýs­ing, ásamt öðrum ferl­um sem eru í gangi á alþjóðavett­vangi, leiði til stærri skrefa í mál­um Palestínu,“ er haft eft­ir for­sæt­is­ráðherra í til­kynn­ingu Stjórn­ar­ráðsins.

mbl.is