„Ég er ótrúlega hamingjusamur. Mér finnst mér sýndur mikill heiður því ég er aðeins nítján ára. Að vera nítján og komast í úrslit … já, það er svakalega smart“, segir Kyle Alessandro Helgesen Villalobos þegar mbl.is ræðir við hann í Basel. Kyle tryggði sig í úrslit Eurovision sama kvöld og VÆB-bræður.

Myndbandið af Kyle fagna því þegar VÆB-bræðurnir komust í úrslit hefur farið eins og eldur í sinu.
„Ég varð yfir mig glaður.“
VÆB-bræður kalli hann „best friend“ - og Kyle hermir eftir íslenska hreimnum: „Best frend.“
Þá segir Kyle VÆB-bræðurna líka hafa kennt sér íslensku eins og til dæmis frasann „Viltu deyja gaur?“.
Kyle samdi lagið Lighter ásamt Adam Wood.
„Ég bjó til demó og Adam, sem hefur verið tvisvar í Melodifestivalen, sagði: Vá, þetta er mjög gott“, útskýrir Kyle.
Wood framleiddi nýja útgáfu: „Strengirnir gerðu lagið epískt.“
Saman sendu þeir verkið í Melodi Grand Prix: „Við sendum það - og við unnum og hér erum við, í úrslitum Eurovision.“
Er Adam norskur?
„Nei, sænskur… uss“.
„Ef þú ert í þessu, ertu í þessu til að vinna“, segir hann. Hann bætir svo við:
„Ég vil ná topp tíu, það væri mjög kúl. Topp fimm væri brjálað.“
Sama hvernig fer er ljóst að Kyle hefur stækkað markhópinn sinn umtalsvert.
„Ég fór úr 60.000 fylgjendum upp í 130.000. Það er brjálað.“
Stress? „Nei, ekkert. Við VÆB erum yngstu þátttakendurnir. Kannski er það aldurinn.“
Faðir hans er á staðnum en móðirin er heima vegna veikinda. Hún sendi hins vegar raddskilaboð eftir að Kyle komst áfram:
„Hún sagði: Ég er svo, svo, svo stolt af þér.“
Bróðir hans brunaði á bíl frá Noregi með kærustuna og hárlausa köttinn sinn: „Leiðin var Noregur–Svíþjóð–Danmörk–Þýskaland–Frakkland–Ítalía–og svo hingað til Basel. Þetta hefur tekið hann tvær vikur.“
Að lokum snýr hann sér til Íslands:
„Takk kærlega fyrir stuðninginn í undanúrslitunum. Ég veit að margir Íslendingar kusu mig. Endilega haldið áfram að styðja VÆB - þeir eru frábærir. Ef ykkur líkar það sem ég geri á laugardaginn, þá megið þið endilega kjósa mig.“
mbl.is fylgist áfram með Kyle, VÆB og öllum hinum keppendunum þegar ljósin kvikna í St. Jakobshalle annað kvöld.