Svíar tróna á toppnum

Eurovision | 17. maí 2025

Svíar tróna á toppnum

Veðbankar spá Svíum sigri í Söngvakeppni evrópskra sjónvarpsstöðva í kvöld með 41% vinningslíkum. Margt getur þó enn breyst og hefur spá veðbanka klikkað. 

Svíar tróna á toppnum

Eurovision | 17. maí 2025

Það er finnska hljómsveitin KAJ sem er fulltrúi Svía í …
Það er finnska hljómsveitin KAJ sem er fulltrúi Svía í ár. AFP/Sebastien Bozon

Veðbank­ar spá Sví­um sigri í Söngv­akeppni evr­ópskra sjón­varps­stöðva í kvöld með 41% vinn­ings­lík­um. Margt get­ur þó enn breyst og hef­ur spá veðbanka klikkað. 

Veðbank­ar spá Sví­um sigri í Söngv­akeppni evr­ópskra sjón­varps­stöðva í kvöld með 41% vinn­ings­lík­um. Margt get­ur þó enn breyst og hef­ur spá veðbanka klikkað. 

Komi til þess að Sví­ar beri sig­ur úr být­um er það í átt­unda skiptið sem landið sigr­ar keppn­ina. Síðast var það söng­kon­an Lor­een með lagið Tatto sem sigraði keppn­ina árið 2023. Það var í annað sinn sem hún sigraði í Eurovisi­on. 

Aust­ur­ríki er spáð öðru sæti í keppn­inni með 20% vinn­ings­lík­um. Þá er Frakklandi spáð þriðja sæti. 

Veðbank­ar spá Íslandi 24. sæti en þess ber að geta að Íslandi var ekki spáð áfram af veðbönk­um í undanúr­slit­um þrátt fyr­ir að Væb-strák­arn­ir hafi flogið í úr­slit. Það get­ur því allt gerst. 

Fram­lag Svía í keppn­inni er at­hygl­is­vert fyr­ir ýms­ar sak­ir. Meðal ann­ars vegna þess að það eru Finn­ar en ekki Sví­ar sem flytja lagið þar sem þeir syngja um sauna-menn­ingu Finna. Liðsmenn sveit­ar­inn­ar til­heyra nefni­lega jaðar­menn­ing­ar­sam­fé­lagi sænsku­mæl­andi Finna. 

mbl.is