Þvagi og saur daglega slett á fangaverði

Dagmál | 18. maí 2025

Daglegt brauð að þvagi og saur sé slett á fangaverði

Álag á fangaverði er mikið í fangelsum landsins sem eru alla jafna yfirfull að sögn Birgis Jónassonar, setts fangelsismálastjóra. Hann segir það nær daglegt brauð að þvagi og saur sé skvett á fangaverði og að skyrpt sé á þá.

Daglegt brauð að þvagi og saur sé slett á fangaverði

Dagmál | 18. maí 2025

Video Player is loading.
Current Time 0:00
Duration 0:00
Loaded: 0%
Stream Type LIVE
Remaining Time 0:00
 
1x
  • Chapters
  • descriptions off, selected
  • subtitles off, selected
    • Quality

    Álag á fanga­verði er mikið í fang­els­um lands­ins sem eru alla jafna yf­ir­full að sögn Birg­is Jónas­son­ar, setts fang­els­is­mála­stjóra. Hann seg­ir það nær dag­legt brauð að þvagi og saur sé skvett á fanga­verði og að skyrpt sé á þá.

    Álag á fanga­verði er mikið í fang­els­um lands­ins sem eru alla jafna yf­ir­full að sögn Birg­is Jónas­son­ar, setts fang­els­is­mála­stjóra. Hann seg­ir það nær dag­legt brauð að þvagi og saur sé skvett á fanga­verði og að skyrpt sé á þá.

    Það séu ekki mörg dæmi um al­var­leg at­vik milli fanga en hins veg­ar sé skil­grein­ing­ar­atriði hvað telj­ist al­var­leg at­vik.

    Al­var­leg átök ekki al­geng 

    „Þeir þurfa að sæta því að hrækt sé á þá og að saur og þvagi sé slett á það. Þetta er dag­legt brauð í ákveðnum til­vik­um. Auðvitað er þetta brot gegn vald­stjórn­inni. En ég myndi segja að al­var­leg átök séu ekki mjög al­geng. Það er lík­lega vegna þess að okk­ar nálg­un snýst um sam­tals­tækni. Hjá okk­ur er mjög hæft fólk sem hef­ur góða þjálf­un og mikla mennt­un á þessu sviði,“ seg­ir Birg­ir.

    Fangelsi Heimila á samkvæmt frumvarpi dómsmálaráðherra að fullnusta allt að …
    Fang­elsi Heim­ila á sam­kvæmt frum­varpi dóms­málaráðherra að fulln­usta allt að tveggja ára óskil­orðsbundið fang­elsi með sam­fé­lagsþjón­ustu. Eggert Jó­hann­es­son

    Kúnst að blanda sam­an föng­um 

    Hvað með átök á milli fanga, eru þau mjög al­geng?

    „Alltaf öðru hverju. Ég myndi ekki segja að þau væru al­geng en það er mik­il áskor­un fyr­ir okk­ur að stýra fólki. Það er mik­il kúnst og fræði að blanda fólki sam­an. Það sem ger­ir okk­ur erfitt fyr­ir að aðbúnaður í fang­els­um, og þá sér­stak­lega á Litla Hrauni, er þannig að við eig­um erfitt um vik að stýra fólki og að hafa fulla stjórn á því að til­tek­inn fangi hitti ekki ann­an fanga.“

    Birgir Jónasson ræddi við Dagmál mbl.is.
    Birg­ir Jónas­son ræddi við Dag­mál mbl.is. mbl.is/​Hall­ur Már
    mbl.is