Alltof geyst farið í hækkun veiðigjalda

Veiðigjöld | 19. maí 2025

Alltof geyst farið í hækkun veiðigjalda

Greining KPMG á áhrifum fyrirhugaðrar hækkunar á veiðigjöldum fyrir einstök byggðarlög, bæði sveitarfélögin og atvinnulíf þar, er mikið áhyggjuefni að mati þriggja sveitarstjóra, sem Morgunblaðið ræddi við.

Alltof geyst farið í hækkun veiðigjalda

Veiðigjöld | 19. maí 2025

Fyrstu umræðu um veiðigjalda­frum­varpið er lokið og var samþykkt að …
Fyrstu umræðu um veiðigjalda­frum­varpið er lokið og var samþykkt að vísa mál­inu til at­vinnu­vega­nefnd­ar. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Grein­ing KPMG á áhrif­um fyr­ir­hugaðrar hækk­un­ar á veiðigjöld­um fyr­ir ein­stök byggðarlög, bæði sveit­ar­fé­lög­in og at­vinnu­líf þar, er mikið áhyggju­efni að mati þriggja sveit­ar­stjóra, sem Morg­un­blaðið ræddi við.

Grein­ing KPMG á áhrif­um fyr­ir­hugaðrar hækk­un­ar á veiðigjöld­um fyr­ir ein­stök byggðarlög, bæði sveit­ar­fé­lög­in og at­vinnu­líf þar, er mikið áhyggju­efni að mati þriggja sveit­ar­stjóra, sem Morg­un­blaðið ræddi við.

„Við höf­um áhyggj­ur af því að veiðigjöld­in verði mis­mik­il milli sveit­ar­fé­laga, íþyngj­andi fyr­ir sum sveit­ar­fé­lög en önn­ur ekki,“ seg­ir Jón Páll Hreins­son, bæj­ar­stjóri í Bol­ung­ar­vík.

Í því fel­ist ekki andstaða við auðlinda­gjöld. Þvert á móti ættu fleiri að greiða gjöld fyr­ir auðlinda­nýt­ingu, t.d. á heitu vatni, aðgang að landi og ámóta.

„Við sökn­um heild­stæðrar auðlinda­stefnu.“

Sig­ur­jón Andrés­son, bæj­ar­stjóri á Höfn í Hornafirði, tel­ur að stjórn­völd hafi farið alltof geyst.

„Við hvetj­um stjórn­völd til að fara vel yfir þetta í sinni þing­legu meðferð,“ seg­ir hann og bæt­ir við að aug­ljóst sé af niður­stöðum KPMG að und­ir­búa hefði þurft málið bet­ur og gera slíka grein­ingu. „Án þess að vera með neina drama­tík, þá þarf að staldra við og rýna þetta bet­ur.“

Krist­inn Jónas­son bæj­ar­stjóri Snæ­fells­bæj­ar er sama sinn­is.

„Það kom fram í skýrsl­unni, þegar farið er að rýna þetta, að það er mjög vill­andi að byggja á meðal­töl­um. Það er miklu gáfu­legra að skoða ein­stök sveit­ar­fé­lög, áhrif­in á fyr­ir­tæk­in í þeim og áhrif á sveit­ar­fé­lög­in sjálf.

Nán­ari um­fjöll­un má finna í Morg­un­blaðinu í dag. Einnig má nálg­ast hana án end­ur­gjalds í Mogg­an­um, nýju appi Morg­un­blaðsins og mbl.is.

mbl.is