Misa Hylton, barnsmóðir rapparans Sean „Diddy“ Combs, mætti til réttarhaldanna yfir rapparanum til að styðja við bakið á 30 ára syni þeirra Justin Combs, sem hefur verið viðstaddur réttarhöldin. Hún segist myndu gera allt það sem sonur hennar biður hana um.

Tónlistarmógúllinn Combs er ákærður fyrir kynlífsmansal og fjársvik gegn fjölda meintra fórnarlamba, sem og að hafa gagngert flutt fólk og þvingað á milli staða til að stunda vændi. Réttarhöldin fram í New York-borg.
Hylton, sem er slösuð á fæti, setti inn færslu á Instagram þar sem hún segir m.a.: „Þegar ég slasaðist hafði ég valið að ná mér í friði en þegar sonur minn sagði; mamma, ég þarfnast þín, þá var ég til staðar með göngugrind og allt. Ég er fyrst og fremst móðir, í alvöru, og ég er styrkur sonar míns og þetta [veikindin] er bara það sem er. Svo einfalt er það.“
Hylton var viðstödd fyrstu tvo dagana af réttarhöldum rapparans en hann hefur neitað öllum ákæruliðum.
Auk Hylton og sonarins Justin, hafa móðir rapparans, Janice Combs, aðrir synir hans Quincy, 33 ára, og Christian, 26 ára, einnig mætt, auk 17 ára tvíburadætra Combs, D'Lilu og Jessie og 18 ára dóttur hans Chance.
Á fyrsta degi réttarhaldanna hörfuðu dætur Combs út úr réttarsalnum á meðan á vitnisburði fylgdarmannsins Daniel Phillip stóð, en hann sagði myndrænt frá kynferðislegum athöfnum á milli sín, Combs og fyrrverandi kærustu Combs, Cassie Ventura, sem er ein fórnarlamba í málinu.