Mega gista í gömlu eignunum

Raddir Grindvíkinga | 19. maí 2025

Mega gista í gömlu eignunum

Frá og með 28. maí munu þeir sem gert hafa hollvinasamning um sínar gömlu eignir í Grindavík einnig geta gist í þeim.

Mega gista í gömlu eignunum

Raddir Grindvíkinga | 19. maí 2025

Frá Grindavík.
Frá Grindavík. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Frá og með 28. maí munu þeir sem gert hafa holl­vina­samn­ing um sín­ar gömlu eign­ir í Grinda­vík einnig geta gist í þeim.

Frá og með 28. maí munu þeir sem gert hafa holl­vina­samn­ing um sín­ar gömlu eign­ir í Grinda­vík einnig geta gist í þeim.

Um er að ræða tíma­bundið verk­efni til reynslu í sum­ar. Mark­miðið með því er að ýta und­ir að íbú­ar haldi tengsl­um við bæ­inn og um leið auka lík­urn­ar á að fólk flytji aft­ur til Grinda­vík­ur þegar það er talið ör­uggt.

Auk­inn áhugi á gist­ingu

„Frá því Þórkatla hóf að bjóða upp á holl­vina­samn­inga hef­ur fé­lagið fundið fyr­ir mikl­um áhuga holl­vina á því að gista í eign­un­um. Sá áhugi hef­ur auk­ist jafnt og þétt en hingað til hef­ur ekki verið talið for­svar­an­legt að leyfa gist­ingu. Í ljósi aðstæðna og þró­un­ar í bæn­um hef­ur nú hins veg­ar verið tek­in ákvörðun um að heim­ila holl­vin­um til reynslu að gista í eign­un­um yfir sum­ar­tím­ann, frá lok maí til loka sept­em­ber 2025,” seg­ir í til­kynn­ingu frá fast­eigna­fé­lag­inu.

Horft yfir hraunið þar sem það liggur við varnargarð norður …
Horft yfir hraunið þar sem það ligg­ur við varn­argarð norður af Grinda­vík. mbl.is/​Eggert Jó­hann­es­son

Heim­ild­in bygg­ir á því að staðsetn­ing, ástand og staða bruna­varna sé með þeim hætti að óhætt sé fyr­ir fólk að dvelja í eign­inni næt­ur­langt. Inn­heimt verður um­sýslu­gjald þegar samn­ing­ur um gist­ingu í sum­ar er und­ir­ritaður.

71,6 millj­arðar í heild­ina

Þórkatla hef­ur gengið frá kaup­um á 943 eign­um í Grinda­vík, tekið við 913 eign­um og gengið frá af­sali fyr­ir 904 eign í bæn­um, að því er kem­ur fram í til­kynn­ing­unni. 

Heild­ar­fjárfest­ing fé­lags­ins í þeim 943 eign­um sem gengið hef­ur verið frá til þessa er 71,6 millj­arðar króna. Þar af eru kaup­samn­ings- og af­sals­greiðslur um 50 millj­arðar króna og yf­ir­tek­in hús­næðislán um 21,6 millj­arðar króna.

Frest­ur ein­stak­linga til að sækja um sölu á íbúðar­hús­næði í Grinda­vík rann út 31. mars sl., en lög um fram­leng­ingu á frest­in­um til 30. júní næst­kom­andi eru í vinnslu hjá Alþingi.

mbl.is