Vance og Rubio hittu Leó páfa

Vance og Rubio hittu Leó páfa

Leó páfi tók á móti JD Vance varaforseta Bandaríkjanna og Marco Rubio utanríkisráðherra í Vatíkaninu í dag.

Vance og Rubio hittu Leó páfa

Donald Trump Bandaríkjaforseti | 19. maí 2025

Leó páfi með JD Vance varaforseta Bandaríkjanna og Marco Rubio …
Leó páfi með JD Vance varaforseta Bandaríkjanna og Marco Rubio utanríkisráðherra í Vatíkaninu í dag. AFP/Simone Risoluti/Vatican Media

Leó páfi tók á móti JD Vance vara­for­seta Banda­ríkj­anna og Marco Ru­bio ut­an­rík­is­ráðherra í Vatíkan­inu í dag.

Leó páfi tók á móti JD Vance vara­for­seta Banda­ríkj­anna og Marco Ru­bio ut­an­rík­is­ráðherra í Vatíkan­inu í dag.

„Í viðræðunum, sem haldn­ar voru á skrif­stofu rík­is­ins, var ánægja með tví­hliða sam­skipti ít­rekuð og fjallað um sam­starf kirkju og rík­is, svo og nokk­ur mik­il­væg mál fyr­ir kirkj­una og trúfrelsi,“ sagði Vatíkanið í yf­ir­lýs­ingu.

„Að lok­um var skipst á skoðunum á alþjóðleg­um mál­um og kallað eft­ir virðingu fyr­ir mannúðar- og alþjóðalög­um á sviðum átaka og fyr­ir um­samna lausn milli viðkom­andi aðila.“

Leó páfi með hjónunum JD og Usha Vance og Marco …
Leó páfi með hjón­un­um JD og Usha Vance og Marco Ru­bio og Jea­nette Dous­de­bes. AFP/​Simo­ne Risoluti/​Vatican Media

Leó gagn­rýndi Trump á sam­fé­lags­miðlum

Vance og Ru­bio voru meðal þeirra 200.000 sem komu sam­an í gær til að fagna op­in­beru upp­hafi páfdóms Leós á Pét­urs­torgi.

Áður en hann varð páfi gagn­rýndi Leó Don­ald Trump Banda­ríkja­for­seta á sín­um per­sónu­legu sam­fé­lags­miðlum og tók Vance einnig fyr­ir.

Vance seg­ir Banda­rík­in þó vera mjög stolt af Leó XIV, fyrsta banda­ríska páf­an­um.

„Við biðjum að sjálf­sögðu fyr­ir hon­um er hann hef­ur þessa mik­il­vægu vinnu,“ sagði hann á fundi með Ursulu von der Leyen, for­seta fram­kvæmda­stjórn­ar ESB, og Gi­orgiu Meloni, for­sæt­is­ráðherra Ítal­íu.

Vance hitti einnig Paul Richard Gallagher, erkibiskup.
Vance hitti einnig Paul Rich­ard Gallag­her, erki­bisk­up. AFP/​Simo­ne Risoluti/​Vatican Media
AFP/​Simo­ne Risoluti/​Vatican Media
AFP/​Simo­ne Risoluti/​Vatican Media
AFP/​Simo­ne Risoluti/​Vatican Media
AFP/​Simo­ne Risoluti/​Vatican Media
mbl.is