48 tímar í Basel: Hvað er skemmtilegast að gera?

Borgarferðir | 21. maí 2025

48 tímar í Basel: Hvað er skemmtilegast að gera?

Það eru eflaust ekki margir Íslendingar sem hafa gert sér ferð til Basel í Sviss nema þeir sem skelltu sér á Eurovision nú á dögunum en sú litríka borg kemur skemmtilega á óvart. Basel er þriðja stærsta borg Sviss, staðsett við Rínarfljót rétt við landamæri Frakklands og Þýskalands, og hefur lengi verið menningar- og listamiðstöð landsins.

48 tímar í Basel: Hvað er skemmtilegast að gera?

Borgarferðir | 21. maí 2025

Blaðamaður mbl.is heimsótti Basel nú á dögunum og kom borgin …
Blaðamaður mbl.is heimsótti Basel nú á dögunum og kom borgin heldur betur á óvart. Samsett mynd

Það eru ef­laust ekki marg­ir Íslend­ing­ar sem hafa gert sér ferð til Basel í Sviss nema þeir sem skelltu sér á Eurovisi­on nú á dög­un­um en sú lit­ríka borg kem­ur skemmti­lega á óvart. Basel er þriðja stærsta borg Sviss, staðsett við Rín­ar­fljót rétt við landa­mæri Frakk­lands og Þýska­lands, og hef­ur lengi verið menn­ing­ar- og listamiðstöð lands­ins.

Það eru ef­laust ekki marg­ir Íslend­ing­ar sem hafa gert sér ferð til Basel í Sviss nema þeir sem skelltu sér á Eurovisi­on nú á dög­un­um en sú lit­ríka borg kem­ur skemmti­lega á óvart. Basel er þriðja stærsta borg Sviss, staðsett við Rín­ar­fljót rétt við landa­mæri Frakk­lands og Þýska­lands, og hef­ur lengi verið menn­ing­ar- og listamiðstöð lands­ins.

Blaðamaður mbl.is skellti sér í stutta vorferð til Basel. Borg­in reynd­ist al­gjör menn­ingarperla þar sem hægt er að hjóla á milli heimsklassa lista­safna, slaka á við ár­bakk­ann og sökkva sér í sögu borg­ar­inn­ar í fal­leg­um miðbæn­um.

Hvað er gam­an að gera?

Hjóla meðfram Rín

Það er frá­bær hug­mynd að skoða Basel á reiðhjóli. Göngu­stíg­ar og hjóla­braut­ir liggja meðfram Rín­ar­fljót­inu og gefa gest­um tæki­færi til að njóta út­sýn­is­ins yfir vatnið á meðan hjólað er milli hverfa. Lands­lagið er að mestu flatt við ána svo áreynsl­an er lít­il. Hægt er að leigja hjól víða um borg­ina og hjóla yfir sögu­legu brýrn­ar, inn í þröng­ar göt­ur gamla bæj­ar­ins eða jafn­vel út að Dreiländ­ereck, horn­inu þar sem landa­mæri þriggja landa mæt­ast. 

Synda í ánni

Á sól­rík­um dög­um má sjá heima­menn Basel kæla sig niður með því að synda í sjálfu Rín­ar­fljót­inu. Það hef­ur lengi verið hefð í borg­inni að stökkva út í tær­ar öld­ur Rín­ar og láta straum­inn bera sig meðfram borg­inni. Fyr­ir þá sem treysta sér ekki í sund­sprett er líka hægt að busla við ár­bakk­ann eða ein­fald­lega fara í fótabað í fljót­inu. 

Rínarfljótið skartar sínu fínasta á fallegum vordegi.
Rín­ar­fljótið skart­ar sínu fín­asta á fal­leg­um vor­degi. mbl.is/​Haf­dís Sól

Njóta úti­markaða

Basel stát­ar af líf­leg­um úti­mörkuðum þar sem hægt er að upp­lifa ekta sviss­neskt mann­líf. Snemma á morgn­ana leggja bænd­ur og kaup­menn und­ir sig Markaðstorgið (Markt­platz) í hjarta borg­ar­inn­ar. Þar má rölta milli bása und­ir ber­um himni og velja úr fersku græn­meti, ávöxt­um, ost­um og blóm­um sem fylla torgið af lit­um og ilmi. Ef ferðin á sér stað á laug­ar­degi er ómiss­andi að kíkja við á flóa­markaðinn á Petersplatz, þar sem hægt er að fá allt milli him­ins og jarðar - forn hús­gögn, vínyl­plöt­ur, antik­muni og jafn­vel vinta­ge-föt. Við hvert horn má finna eitt­hvað for­vitni­legt.

Hvað er gam­an að sjá?

Dóm­kirkj­an og út­sýnið yfir Rín

Hin tign­ar­lega Basel-dóm­kirkja (Basler Mün­ster) set­ur svip sinn á borg­ina. Kirkj­an, sem var upp­haf­lega reist á 13. öld, er ekki bara glæsi­leg að utan held­ur geym­ir líka merki­lega sögu og glerl­ist inni. Svo er það Pfalz, út­sýn­ispall­ur aft­an við kirkj­una, þar sem ferðalang­ar og heima­menn safn­ast gjarn­an sam­an. Þaðan sérðu blágræna fljótið sem renn­ur í gegn­um borg­ina. Á góðviðris­degi má jafn­vel greina snævaþakta tinda sviss­nesku Alp­anna í fjarska.

Sólsetur með útsýni yfir Basel.
Sól­set­ur með út­sýni yfir Basel. mbl.is/​Haf­dís Sól

Göngu­ferð um gamla bæ­inn

Gamli bær­inn í Basel er sann­kölluð tíma­vél. Best er að byrja göng­una við Markaðstorgið, þar sem hið skraut­lega Ráðhús (Basler Rat­haus) gleður augað. Þaðan get­urðu rölt inn í hinar stein­lögðu hliðargöt­ur miðbæj­ar­ins, t.d. upp breiðstrætið Freie Strasse þar sem versl­an­ir og kaffi­hús leyn­ast í sögu­fræg­um bygg­ing­um, eða inn í þrengri smugur eins og Spalen­berg. Í þess­um hverf­um má sjá fjölda húsa frá miðöld­um, máluð í mild­um pastel-lit­um með viðar­glugg­um og blóm­um í glugga­kist­un­um. Á leiðinni kík­irðu kannski inn í litl­ar hönn­un­ar- og hand­verksversl­an­ir sem finna má á hverju strái, eða ein­fald­lega dreg­ur and­ann djúpt og nýt­ur þess að finna ilm­inn af ný­bökuðu brauði og kaff­inu sem berst út á göt­urn­ar. 

Gamli bærinn í Basel gleður augað.
Gamli bær­inn í Basel gleður augað. mbl.is/​Haf­dís Sól

Lista­safnið Kunst­mu­se­um

Basel er þekkt sem borg lista­safna, enda er hald­in þar ein stærsta lista­hátíð í heimi, Art Basel. Ef tím­inn leyf­ir aðeins eitt safn er Kunst­mu­se­um Basel, lista­safn Basel-borg­ar, skyldu­áfangastaður fyr­ir lista­spír­ur. Þetta virðulega safn er elsta lista­safn Sviss og hýs­ir stór­kost­legt safn meist­ara­verka frá ólík­um tím­um. Á veggj­um þess hanga verk eft­ir lista­menn á borð við Hol­bein, Picasso, Mo­net og Van Gogh, auk víðfræga sam­tíma­lista­manna.

Mat­ur og drykk­ir

Zum Kuss

Zum Kuss er áfangastaður sem gleður bæði bragðlauka og augu. Húsið stend­ur við græna trjá­hvísl í De Wette-/​Elisa­bet­hen-garðinum, í Art-Nou­veau húsi sem áður hýsti lík­hús borg­ar­inn­ar - sem hljóm­ar reynd­ar ekk­ert heill­andi en í dag hef­ur bygg­ing­in umbreyst í hlý­legt kaffi­hús. Hér get­ur þú byrjað dag­inn á ilm­andi espresso macchiato, eins og Tommy Ca$h söng um, og ný­bökuðu Läc­kerli, gripið létt­an há­deg­is­mat eða kíkt í kokteil. Það er eitt­hvað svo ynd­is­legt við það að sjá allt fólkið njóta lífs­ins í græna garðinum, með kaffi­bolla eða jafn­vel einn Aperol Spritz í hendi.

Hversu næs!
Hversu næs! mbl.is/​Haf­dís Sól
mbl.is