Eno gagnrýnir Microsoft harðlega

Ísrael/Palestína | 21. maí 2025

Eno gagnrýnir Microsoft harðlega

Brian Eno, tónlistarmaður og höfundur opnunarstefs Windows 95-stýrikerfisins, segir tölvurisann Microsoft samsekan þegar kemur að framgöngu Ísraelsríkis gagnvart Palestínu sem hann lýsir sem stríðsglæpum.

Eno gagnrýnir Microsoft harðlega

Ísrael/Palestína | 21. maí 2025

Brian Eno, höfundur Microsoft-stefsins, hefur lengi talað gegn stríðsrekstri í …
Brian Eno, höfundur Microsoft-stefsins, hefur lengi talað gegn stríðsrekstri í heiminum AFP/Tobias Schwarz

Bri­an Eno, tón­list­armaður og höf­und­ur opn­un­ar­stefs Windows 95-stýri­kerf­is­ins, seg­ir tölvuris­ann Microsoft sam­sek­an þegar kem­ur að fram­göngu Ísra­els­rík­is gagn­vart Palestínu sem hann lýs­ir sem stríðsglæp­um.

Bri­an Eno, tón­list­armaður og höf­und­ur opn­un­ar­stefs Windows 95-stýri­kerf­is­ins, seg­ir tölvuris­ann Microsoft sam­sek­an þegar kem­ur að fram­göngu Ísra­els­rík­is gagn­vart Palestínu sem hann lýs­ir sem stríðsglæp­um.

Þetta kem­ur fram í opnu bréfi Eno til Microsoft sem birt­ist á vef DiEM25 fyrr í dag.

Eno hef­ur átt góðu gengi að fagna í gegn­um árin á sviði rokk- og raf­tón­list­ar. Hann er tal­inn brautryðjandi í raf­tónlist og er oft kallaður afi ambient-stefn­unn­ar.

Meðal merkra afurða hans í tón­list­ar­heim­in­um er stefið sem hann samdi fyr­ir Windows 95-stýri­kerfi Microsoft og millj­ón­ir, ef ekki millj­arðar, hafa heyrt síðan.

Eno seg­ist hafa notið sam­skipta við tengiliði sína inn­an fyr­ir­tæk­is­ins, en að hann hefði ekki órað fyr­ir því að sama fyr­ir­tæki myndi ein­hvern tím­ann taka þátt í kúg­un og stríði.

Hef­ur áhyggj­ur af þátt­töku Microsoft

„Í dag sé ég mig knú­inn til að tjá mig. Ekki sem tón­skáld í þetta sinn, held­ur sem al­menn­ur borg­ari sem hef­ur áhyggj­ur af hlut­verki Microsoft á öðru sviði – sviði eft­ir­lits, of­beld­is og eyðilegg­ing­ar í Palestínu“.

Tölvurisinn Microsoft.
Tölvuris­inn Microsoft. AFP/​Ger­ard Ju­lien

Hann seg­ir Microsoft hafa geng­ist við því í blogg­færslu frá 15. maí 2025 að hafa séð varn­ar­málaráðuneyti Ísra­els fyr­ir hug­búnaði, sér­fræðiþjón­ustu o.fl. og að í sömu færslu sé tekið fram að Microsoft hafi ekki yf­ir­sýn yfir hvernig búnaður­inn sé notaður.

Eno seg­ir að það sé engu að síður á ábyrgð Microsoft að starfa með ríki sem af lög­fræðing­um, mann­rétt­inda­sam­tök­um, og í aukn­um mæli rík­is­stjórn­um víðs veg­ar um heim sé sagt fremja þjóðarmorð.

Siðferðis­leg skylda fylgi um­svif­um fyr­ir­tæk­is­ins

„Það að selja og miðla þróaðri gervi­greind og tækniþjón­ustu áfram til rík­is­stjórn­ar sem fram­kvæm­ir kerf­is­bundn­ar þjóðern­is­hreins­an­ir er meira en „hefðbund­in viðskipti“. Ef þú smíðar vís­vit­andi kerfi sem stuðla að stríðsglæp­um verður þú óhjá­kvæmi­lega sam­sek­ur í þeim glæp­um. Við lif­um á tím­um þar sem fyr­ir­tæki á borð við Microsoft eru um­svifa­meiri en rík­is­stjórn­ir. Ég trúi því að með slíku valdi fylgi al­gjör siðferðis­leg skylda.“

Eno hvet­ur Microsoft til að hætta með alla þá þjón­ustu sem styður brot gegn alþjóðalög­um. 

Hann hrós­ar starfs­mönn­um Microsoft sem látið hafa í sér heyra og lýk­ur bréf­inu með því að hvetja lista­menn, tækni­frömuði, tón­list­ar­menn og „fólk með sam­visku“ til að taka und­ir ákallið. „Megi þetta stef hljóma sem hljóð raun­veru­legra breyt­inga," bæt­ir hann við um Windows 95-stefið. 

mbl.is