„Hefði svo sannarlega viljað sjá kröftugra skref stigið“

Vextir á Íslandi | 21. maí 2025

„Hefði svo sannarlega viljað sjá kröftugra skref stigið“

„Ég fagna því að stýrivaxtalækkunarferlið haldi áfram en ég hefði svo sannarlega viljað sjá kröftugra skref stigið og að vextirnir hefðu verið lækkaðir um 0,50 punkta.“

„Hefði svo sannarlega viljað sjá kröftugra skref stigið“

Vextir á Íslandi | 21. maí 2025

Vilhjálmur Birgisson, formaður Starfsgreinasambandsins.
Vilhjálmur Birgisson, formaður Starfsgreinasambandsins. mbl.is/Kristinn Magnússon

„Ég fagna því að stýri­vaxta­lækk­un­ar­ferlið haldi áfram en ég hefði svo sann­ar­lega viljað sjá kröft­ugra skref stigið og að vext­irn­ir hefðu verið lækkaðir um 0,50 punkta.“

„Ég fagna því að stýri­vaxta­lækk­un­ar­ferlið haldi áfram en ég hefði svo sann­ar­lega viljað sjá kröft­ugra skref stigið og að vext­irn­ir hefðu verið lækkaðir um 0,50 punkta.“

Þetta seg­ir Vil­hjálm­ur Birg­is­son, formaður Starfs­greina­sam­bands­ins og formaður Verka­lýðsfé­lags Akra­ness, þegar leitað var eft­ir viðbrögðum hans um þá ákvörðun pen­inga­stefnu­nefnd­ar Seðlabank­ans að lækka stýri­vext­ina um 0,25 pró­sent.

Eft­ir lækk­un­ina standa vext­irn­ir í 7,50% en þetta er fimmta skipti í röð sem bank­inn lækk­ar vexti sína.

Vil­hjálm­ur seg­ir að skila­boðin sem hefðu verið fólg­in í því að lækka stýri­vext­ina um 0,50% væru að ná niður verðbólgu­vænt­ing­um.

„Að sjálf­sögðu er það bank­inn sjálf­ur sem stjórn­ar vænt­ing­un­um út frá vaxta­stigi en við fögn­um því samt að þetta er fimmta lækk­un­in í röð og við skul­um vona að þetta ferli haldi áfram. Við grát­um ekki að sjá lækk­un,“ seg­ir Vil­hjálm­ur við mbl.is.

Næsta stýri­vaxta­ákvörðun verður 20. ág­úst og seg­ir Vil­hjálm­ur ekk­ert ólík­legt að raun­vaxta­stigið eigi eft­ir að hækka í millitíðinni.

Er óþolandi með öllu

Vil­hjálm­ur er ekki sátt­ur við hátt verð á olíu og bens­íni hér á landi. Hann bend­ir á að heims­markaðsverð á olíu hafi lækkað um á þriðja tug pró­senta á síðustu 12 mánuðum. Krón­an hafi styrkst um 7% gagn­vart doll­ara en bens­ín­verð hafi ein­ung­is lækkað um 2,8%.

„Þetta er rann­sókn­ar­efni. Það er ekki hægt að mis­bjóða neyt­end­um með þess­um hætti og þetta er óþolandi með öllu. Það stend­ur ekki á þeim að þegar heims­markaðsverð á olíu hækk­ar hressi­lega þá hækka olíu­fé­lög­in verðið sam­dæg­urs. Menn finna alltaf góðar og gild­ar ástæður fyr­ir veru­leg­um hækk­un­um en það stend­ur á svör­um þegar svona staðreynd­ir blasa við,“ seg­ir Vil­hjálm­ur.

mbl.is