Leyfa afhendingu hjálpargagna til Gasa

Ísrael/Palestína | 21. maí 2025

Leyfa afhendingu hjálpargagna til Gasa

Sameinuðu arabísku furstadæmin hafa náð samkomulagi við Ísrael um að heimila að brýn mannúðaraðstoð verði send inn á Gasasvæðið en Sameinuðu þjóðirnar segja að dreifing hjálpargagna sé enn ekki hafin.

Leyfa afhendingu hjálpargagna til Gasa

Ísrael/Palestína | 21. maí 2025

Alvarlegur matar-og lyfjaskortur er viðvarandi á Gasa.
Alvarlegur matar-og lyfjaskortur er viðvarandi á Gasa. AFP

Sam­einuðu ar­ab­ísku fursta­dæm­in hafa náð sam­komu­lagi við Ísra­el um að heim­ila að brýn mannúðaraðstoð verði send inn á Gasa­svæðið en Sam­einuðu þjóðirn­ar segja að dreif­ing hjálp­ar­gagna sé enn ekki haf­in.

Sam­einuðu ar­ab­ísku fursta­dæm­in hafa náð sam­komu­lagi við Ísra­el um að heim­ila að brýn mannúðaraðstoð verði send inn á Gasa­svæðið en Sam­einuðu þjóðirn­ar segja að dreif­ing hjálp­ar­gagna sé enn ekki haf­in.

Ísra­el­ar segja að 93 flutn­inga­bíl­ar, full­ir af barna­mat, lyfj­um og lækn­inga­tækj­um, hafi farið inn á Gasa í gær og í fyrra­dag en að sögn Sam­einuðu þjóðanna var dreif­ing varn­ings­ins frestað.

Sheikh Abdullah bin Zayed, aðstoðarfor­sæt­is­ráðherra og ut­an­rík­is­ráðherra Sam­einuðu ar­ab­ísku fursta­dæm­anna, ræddi við við Gi­deon Saar, ut­an­rík­is­ráðherra Ísra­els, sem leiddi til sam­komu­lags um að leyfa af­hend­ingu brýnn­ar mannúðaraðstoðar frá Sam­einuðu ar­ab­ísku fursta­dæmun­um.

Ísra­els­menn hafa verið beitt­ir alþjóðleg­um þrýst­ingi um að stöðva hernaðaraðgerðir sín­ar á Gasa og hleypa aðstoð inn á svæðið þar sem mannúðar­stofn­an­ir segja að al­var­leg­ur mat­ar-og lyfja­skort­ur sé viðvar­andi og að þúsund­ir barna komi til með að deyja úr hungri.

Benja­mín Net­anja­hú, for­sæt­is­ráðherra Ísra­els, sagði í vik­unni að það væri nauðsyn­legt fyr­ir Ísra­el að koma í veg fyr­ir hung­urs­neyð á Gasa af „praktísk­um og diplóma­tísk­um ástæðum“, eft­ir að rík­is­stjórn hans til­kynnti að hún myndi leyfa tak­markaða aðstoð inn á svæðið.

mbl.is