Metár hjá Rapyd þrátt fyrir sniðgöngu

Ísrael/Palestína | 21. maí 2025

Metár hjá Rapyd þrátt fyrir sniðgöngu

Rapyd á Íslandi hagnaðist um rúmlega þrjá milljarða króna á síðasta ári þrátt fyrir tal um sniðgöngu fyrirtækisins vegna tengsla þess við Ísrael.

Metár hjá Rapyd þrátt fyrir sniðgöngu

Ísrael/Palestína | 21. maí 2025

Stuðningsmenn Palestínu hafa margir krafist sniðgöngu á Rapyd.
Stuðningsmenn Palestínu hafa margir krafist sniðgöngu á Rapyd. Samsett mynd

Rapyd á Íslandi hagnaðist um rúm­lega þrjá millj­arða króna á síðasta ári þrátt fyr­ir tal um sniðgöngu fyr­ir­tæk­is­ins vegna tengsla þess við Ísra­el.

Rapyd á Íslandi hagnaðist um rúm­lega þrjá millj­arða króna á síðasta ári þrátt fyr­ir tal um sniðgöngu fyr­ir­tæk­is­ins vegna tengsla þess við Ísra­el.

Í árs­reikn­ingi Rapyd Europe hf. kem­ur fram að 2024 hafi verið metár að mörgu leyti. Þar seg­ir að rekstr­ar­tekj­ur fé­lags­ins hafi numið 36 millj­örðum króna sam­an­borið við 25 millj­arða hagnað árið áður, sem er 40,7% aukn­ing milli ára. Árið 2023 hafði hagnaður Rapyd dreg­ist sam­an.

Garðar Stefánsson er forstjóri Rapyd Europe á Íslandi.
Garðar Stef­áns­son er for­stjóri Rapyd Europe á Íslandi. Ljós­mynd/​Aðsend

Heit umræða hef­ur skap­ast um fyr­ir­tækið síðustu 20 mánuði frá því að stríðið á Gasa­strönd­inni hófst.

Alþjóðlega fyr­ir­tækið Rapyd, sem var stofnað í Ísra­el, hef­ur setið und­ir gagn­rýni að und­an­förnu þar sem það er sakað um að hafa starf­semi í land­náms­byggðum Ísra­els­manna á Vest­ur­bakk­an­um í Palestínu, en auk þess hef­ur Arik Shtilm­an, stjórn­ar­formaður Rapyd, lýst yfir af­drátt­ar­laus­um stuðningi fyr­ir­tæk­is­ins við Ísra­el í stríðinu.

Fyr­ir vikið hafa stuðnings­menn Palestínu á Íslandi kallað eft­ir sniðgöngu á greiðslumiðlun­ar­ris­an­um, sem hóf starf­semi sína hér á landi um 2021 þegar Rapyd keypti ís­lenska greiðslumiðlun­ar­fyr­ir­tækið Valitor.

Sú sniðganga virðist ekki hafa vegið þungt í árs­reikn­ingi Rapyd, þar sem rekstr­ar­hagnaður fyr­ir af­skrift­ir (EBITDA) nem­ur 4,3 millj­örðum króna sem er um tvö­falt meira en árið áður. Heild­araf­kom­an stökk þannig úr 900 millj­ón­um króna árið 2023 upp í 3.070 millj­ón­ir.

Eigið fé fé­lags­ins jókst á ár­inu um 16%, úr tæp­lega 10 millj­örðum í 11,6 millj­arða. Bók­færðar eign­ir námu 52 millj­örðum, sem er lækk­un úr 57 millj­örðum árið áður.

Í vik­unni vakti Rapyd at­hygli hér á landi eft­ir að Dag­björt Há­kon­ar­dótt­ir, þingmaður Sam­fylk­ing­ar­inn­ar, fékk skila­boð frá reglu­verði Rapyd á Íslandi. Hún hafði sagt að „óheppi­legt“ væri að ís­lensk stjórn­völd hefðu ákveðið að end­ur­nýja samn­ing sinn við ísra­elska greiðslumiðlun­ar­fyr­ir­tækið. Óskandi væri að við gæt­um beint okk­ar viðskipt­um annað.

Í skila­boðunum til Dag­bjart­ar kom fram að orðin væru von­brigði og að von­andi hefði hún sóma í sér að draga þau til baka.

Í kjöl­farið sendu stjórn­end­ur Rapyd frá sér yf­ir­lýs­ingu þar sem þeir sögðu að Rapyd á Íslandi væri ís­lenskt hluta­fé­lag sem greiddi skatta og skyld­ur á Íslandi. 

Arik Shtilman, sem er framkvædmastjóri Rapyd í Ísrael, er einnig …
Arik Shtilm­an, sem er fram­kvæd­ma­stjóri Rapyd í Ísra­el, er einnig stjórn­ar­formaður Rapyd á Íslandi og skráður raun­veru­leg­ur eig­andi fyr­ir­tæk­is­ins. Ljós­mynd/​Rapyd

Í árs­reikn­ingi Rapyd er hvergi vikið að sniðgöngu eða hugs­an­leg­um áhrif­um að henni. Und­ir liðinum „framtíðar­horf­ur“ seg­ir þó bú­ist sé við áhrif­um vegna þjóðhags­legra aðstæðna, eins og m.a. stýri­vöxt­um, elds­um­bort­um, inn­rás Rússa í Úkraínu – og „átök­um í Ísra­el“.

mbl.is