Snorri Másson þingmaður Miðflokksins gerði barneignir innfæddra Íslendinga að umræðuefni í ræðu á Alþingi í dag.
Snorri Másson þingmaður Miðflokksins gerði barneignir innfæddra Íslendinga að umræðuefni í ræðu á Alþingi í dag.
Snorri Másson þingmaður Miðflokksins gerði barneignir innfæddra Íslendinga að umræðuefni í ræðu á Alþingi í dag.
Snorri er nýkominn aftur til starfa eftir barneignarleyfi en hann og eiginkona hans, Nadine Guðrún Yaghi, eignuðust sitt þriðja barn í apríl.
„Þar er maður alltaf auðvitað djúpt snortinn af þakklæti gagnvart þeim einstöku konum sem halda uppi fæðingaþjónustunni,“ sagði Snorri.
„Stjórnmálamanninum í manni verður það á að hugsa að miðað við hvað við höfum allt til alls þarna, miðað við hvað aðstæður eru góðar, þá erum við ekki að nýta þetta kannski alveg nógu vel. Ég veit ekki hvort að þær væru sammála mér, það er auðvitað mikið að gera, en við erum ekki að fæða nógu mikið af börnum.“
Snorri sagði að hver kona eignist að meðaltali 1,53 börn en það þurfi 2,1 barn til þess að viðhalda þjóðinni.
„Við erum ekki bara að skreppa saman, heldur erum við hálfpartinn að deyja út ef við tökum svo strangt til orða,“ sagði Snorri.
Í útreikningum hans telur hann ekki innflytjendur heldur eingöngu innfædda Íslendinga, eða 330.000 manns.
„Eftir 90 ár af óbreyttri fæðingatíðni verðum við orðnir 200.000 Íslendingar. Ef fæðingatíðnin lækkar áfram niður í 1,1, sem hún hefur sannarlega gert sums staðar, þá endum við nálægt 100.000 manns eftir 90 ár.“
Vill hann að stjórnvöld taki málið alvarlega, setji það í forgang og skoði að fara í nýjar aðgerðir, „eitthvað sem sendir skilaboð inn í umræðuna um að barneignir séu málið“.
Biðlaði hann einnig til almennings um að íhuga barneignir: „Þetta er ekki svo mikið vesen, þó þetta sé sannarlega vesen.“