Stýrivextir lækkaðir um 0,25 prósentustig

Vextir á Íslandi | 21. maí 2025

Stýrivextir lækkaðir um 0,25 prósentustig

Peningastefnunefnd Seðlabanka Íslands hefur ákveðið að lækka vexti bankans um 0,25 prósentur. Meginvextir bankans, vextir á sjö daga bundnum innlánum, verða því 7,50%.

Stýrivextir lækkaðir um 0,25 prósentustig

Vextir á Íslandi | 21. maí 2025

Seðlabanki Íslands.
Seðlabanki Íslands. mbl.is/Golli

Pen­inga­stefnu­nefnd Seðlabanka Íslands hef­ur ákveðið að lækka vexti bank­ans um 0,25 pró­sent­ur. Meg­in­vext­ir bank­ans, vext­ir á sjö daga bundn­um inn­lán­um, verða því 7,50%.

Pen­inga­stefnu­nefnd Seðlabanka Íslands hef­ur ákveðið að lækka vexti bank­ans um 0,25 pró­sent­ur. Meg­in­vext­ir bank­ans, vext­ir á sjö daga bundn­um inn­lán­um, verða því 7,50%.

All­ir nefnd­ar­menn studdu þessa ákvörðun en þetta er í fjórða skipti í röð sem bank­inn lækk­ar vext­ina.

Lands­bank­inn og Íslands­banki spáðu því að stýri­vext­ir héld­ust óbreytt­ir en Ari­on spáði 0,25 pró­senta lækk­un.

Í yf­ir­lýs­ingu pen­inga­stefnu­nefnd­ar seg­ir að verðbólg­an hafi verið 4,2% í apríl og hafi minnkað tölu­vert frá því sem hún var mest fyr­ir tveim­ur árum.

Sam­kvæmt nýbirtri spá Seðlabank­ans mun hún hald­ast ná­lægt 4% út árið en taka síðan að hjaðna í mark­mið. Óvissa um verðbólgu­horf­ur er þó áfram mik­il, ekki síst vegna ný­legra vend­inga í alþjóðleg­um efna­hags­mál­um.

Enn nokk­ur þrótt­ur í efna­hags­um­svif­um

„Hægt hef­ur á vexti inn­lendr­ar eft­ir­spurn­ar í takt við þétt taum­hald pen­inga­stefn­unn­ar. Spenn­an í þjóðarbú­inu hef­ur því minnkað jafnt og þétt eins og sjá má á hæg­ari um­svif­um á hús­næðis- og vinnu­markaði. Enn virðist þó vera nokk­ur þrótt­ur í efna­hags­um­svif­um sem end­ur­spegl­ast m.a. í nýbirt­um korta­veltu­töl­um. Þá mæl­ist tölu­verð hækk­un launa­kostnaðar og þótt verðbólgu­vænt­ing­ar hafi lækkað eru þær áfram yfir mark­miði,“ seg­ir í yf­ir­lýs­ing­unni.

Vext­ir verða því sem hér seg­ir:

  • Dag­lán 9,25%
  • Lán gegn veði til 7 daga 8,25%
  • Inn­lán bund­in í 7 daga 7,50%
  • Viðskipta­reikn­ing­ar 7,25%
mbl.is