Tékkneski flugherinn kemur hingað til lands á morgun til að sinna loftrýmisgæslu Atlantshafsbandalagsins við Ísland. Alls munu 80 liðsmenn taka þátt. Flugsveitin kemur með fimm orrustuþotur til landsins.

Þetta kemur fram inn á vef Stjórnarráðsins og verður þetta í fjórða sinn sem Tékkar annast loftrýmisgæslu hérlendis. Flugsveitin hefur aðsetur á öryggissvæðinu á Keflavíkurflugvelli.
Þoturnar eru af gerðinni JAS-39C Gripen og geta þær náð allt að 2.037 kílómetra hraða á klukkustund.
Aðflugsæfingar verða að varaflugvöllum á Akureyri og Egilsstöðum á tímabilinu 22. maí til 2. júni með fyrirvara um veður.
Varnarmálasvið Landhelgisgæslu Íslands í samstarfi við Isavia sér um framkvæmd verkefnisins.