„Fæðingin það erfiðasta sem ég gengið í gegnum“

Justin Bieber | 22. maí 2025

„Fæðingin það erfiðasta sem ég gengið í gegnum“

Hailey Bieber opnaði sig um barneignir í viðtali við ameríska Vogue á dögunum. Þá segir hún að hún hafi átt erfitt með að átta sig á meðgöngunni.

„Fæðingin það erfiðasta sem ég gengið í gegnum“

Justin Bieber | 22. maí 2025

Hailey Bieber er eiginkona tónlistarmannsins Justin Bieber.
Hailey Bieber er eiginkona tónlistarmannsins Justin Bieber. AFP

Hailey Bie­ber opnaði sig um barneign­ir í viðtali við am­er­íska Vogue á dög­un­um. Þá seg­ir hún að hún hafi átt erfitt með að átta sig á meðgöng­unni.

Hailey Bie­ber opnaði sig um barneign­ir í viðtali við am­er­íska Vogue á dög­un­um. Þá seg­ir hún að hún hafi átt erfitt með að átta sig á meðgöng­unni.

„Það kom á óvart að ég skyldi verða ófrísk og það eru alls kon­ar til­finn­ing­ar í gangi. Lífið verður aldrei eins aft­ur, það breyt­ist á góðan hátt en það verður aldrei aft­ur eins. Þú verður aldrei aft­ur ein­stak­ling­ur án barns og það hræddi mig. Þetta hafði mik­il áhrif á mig,“ sagði hún. 

Bie­ber sagðist hafa und­ir­búið sig vel fyr­ir fæðing­una með jóga, góðri æf­ingar­útínu og grind­ar­botnsæfing­um. Henni hafi aldrei liðið bet­ur og var í topp­formi að henn­ar mati. En fæðing­in fór ekki af stað af sjálfri sér eins og hún hafði von­ast eft­ir.

„Fæðing­in var það erfiðasta sem ég hef gengið í gegn­um. Legvatnið fór að leka þegar ég var kom­in 39 vik­ur og var sett af stað. Þetta var ekki skemmti­legt. Ég fór að fá hríðir og eft­ir átján klukku­stund­ir fædd­ist heil­brigður dreng­ur.“

Strák­ur­inn kom í heim­inn í ág­úst í fyrra og fékk nafnið Jack Blu­es Bie­ber. 

mbl.is