Byssumaðurinn sem drap tvær manneskjur fyrir utan safn gyðinga í Washington-borg var upphaflega talinn vera fórnarlamb skotárásarinnar og var honum því hleypt inn í bygginguna, að sögn vitna.

„Við heyrðum byssuskot og síðan kemur inn maður sem virðist í miklu uppnámi. Fólk er að tala við hann og reyna að róa hann niður,” sagði Katie Kalisher í viðtali við bandaríska fjölmiðla. Hún sagðist hafa verið inni í safninu þegar árásin var gerð.
„Loks kemur hann þangað sem ég sat og ég sagði: „Viltu fá vatn? Er allt í lagi með þig“.“
Vitnið Yoni Kalin sagði að öryggisvörður hefði hleypt manninum inn í bygginguna. „Ætli þeir hafi ekki haldið að hann væri fórnarlamb,“ sagði hann.
„Hann var í áfalli og einhverjir náðu meira að segja í vatn handa honum. Þeir fengu hann til að setjast niður. „Er allt í lagi með þig? Varstu skotinn? Hvað gerðist?“ Og hann segir: „Einhver þarf að hringja á lögregluna“.
Maðurinn var handtekinn eftir að hann dró upp palestínskan klút úr tösku sinni og lýsti yfir ábyrgð á verknaðinum, að sögn vitnanna.
„Ég gerði þetta. Ég gerði þetta fyrir Gasa,“ höfðu þau eftir honum.
Að sögn lögreglunnar heitir grunaði árásarmaðurinn Elias Rodriguez og er þrítugur frá borginni Chicago.
Ísraelska utanríkisráðuneytið hefur birt nöfn fórnarlambanna tveggja. Þau hétu Yaron Lischinsky og Sarah Lynn Milgrim og störfuðu bæði í ísraelska sendiráðinu í Washington.
Sendiherra Ísraels í Bandaríkjunum, Yechiel Leiter, sagði blaðamönnum að starfsmennirnir tveir hefðu verið par og að Lischinsky hefði ætlað sér að bera upp bónorðið á næstunni.