„Mér fannst ég bara vera settur í geymslu að horfa á sjónvarpið í eitt ár og vera svo bara aftur á sama stað þegar ég kom aftur út,“ segir Ásgeir Þór Nordgulen um reynslu sína af fangelsiskerfinu.
„Mér fannst ég bara vera settur í geymslu að horfa á sjónvarpið í eitt ár og vera svo bara aftur á sama stað þegar ég kom aftur út,“ segir Ásgeir Þór Nordgulen um reynslu sína af fangelsiskerfinu.
„Mér fannst ég bara vera settur í geymslu að horfa á sjónvarpið í eitt ár og vera svo bara aftur á sama stað þegar ég kom aftur út,“ segir Ásgeir Þór Nordgulen um reynslu sína af fangelsiskerfinu.
Ásgeir deildi upplifun sinni á jafningjastuðningi Afstöðu, félags fanga um bætt fangelsismál, á afmælisráðstefnu félagsins í gær.
Segist hann hafa byrjað ungur að brjóta af sér, farið fyrst í fangelsi 18 ára gamall og hafa nú afplánað fangelsisvist fimm sinnum. Þá talar hann um að hafa fundið einhverja spennu og flótta í því að brjóta af sér en faðir hans hafði verið í neyslu í langan tíma og í fangelsi sjálfur.
Ásgeir segist ekki hafa áttað sig á því við sína fyrstu afplánun að hann væri raunverulega kominn í fangelsi. Hann var fljótlega settur í opið fangelsi og strauk þaðan tvisvar.
Hann segir mikilvægt að stjórnvöld hugi að því hvernig þau vilji að menn komi út í samfélagið aftur eftir fangelsisvist. Sjálfur hefur hann nú afplánað fimm sinnum og upplifði í hvert skipti að hann hefði verið settur í geymslu og kæmi svo aftur út á nákvæmlega sama stað og hann var á áður, að undanskilinni síðustu afplánuninni.
Þá fékk hann jafningjastuðning Afstöðu í fangelsinu og „sá að það var eitthvað að gerast hjá þeim, það var einhver glampi í augunum á þeim sem mig langaði svo í“.
„Þeir hjálpuðu mér mjög mikið, mættu mér bara á þessum jafningjagrundvelli og ég vissi að þeir skildu hvað ég var að segja og það skipti mig svo miklu máli. Ég byrjaði að elta þá þegar ég kom út og ári seinna var ég sjálfur farinn upp á litla hraun með Afstöðu að starfa og tveimur árum seinna er ég hérna,“ segir Ásgeir.
Jafningjastuðningur Afstöðu hefur gert Ásgeiri kleift að fá í dag að vera faðir barna sinna, taka þátt í þjóðfélaginu og hjálpa öðrum sem skiptir hann miklu máli.
„Ég á marga vini sem eru ennþá þarna inni. Í fyrsta skipti sem ég fór inn með Afstöðu héldu þeir að ég væri að fara aftur inn – en þeir sáu samt að það væri eitthvað breytt.
Þetta er það sem þetta hefur upp á að bjóða og þetta skiptir mjög miklu máli fyrir mig og strákana, Þorlák og Ingólf, sem byrjuðu með þetta,“ segir hann og vísar í Þorlák Ara Ágústsson og Ingólf Snæ Víðisson, jafningjaráðgjafa Afstöðu, sem einnig deildu reynslu sinni á afmælisráðstefnu félagsins í gær.
Ásgeir segir jafningjastuðning Afstöðu frábært úrræði sem fái marga fanga til að skipta um skoðun, en þeir eigi það oft til að verða móðgaðir þegar fagaðilar tali við þá.
„Við horfum á þá og hugsum bara „þú ert bara háskólamenntuð manneskja og ég trúi og treysti þér ekki“, en þegar það eru menn sem hafa verið í sömu stöðu og við þá er hægt að tala vel við okkur.
Ég er sönnun þess, það er bara svoleiðis.“