Um 200 manns mættu á árshátíð OK sem fram fór í Iðnó á föstudagskvöld. Júlí Heiðar og Dísa veislustýrðu gleðinni og DJ Atli sá um að halda stuðinu gangandi með góðri tónlist. Hlýtt var í veðri og gátu gestir því komið sér fyrir á útisvæði Iðnó um kvöldið og haldið gleðinni áfram þar.

„Það var mikil stemmning, dans og fjör. Það má segja að árshátíðin hafi einkennst af gleði, góðum félagsskap og sterkri samheldni. OK hlaut nýverið viðurkenningu sem fyrirmyndarfyrirtæki VR 2025, fimmta árið í röð, og því var auðvitað fagnað líka í Iðnó,“ segir María Dís Gunnarsdóttir, mannauðsstjóri OK.