VG bjóði fram „með einum eða öðrum hætti“

Dagmál | 23. maí 2025

VG bjóði fram „með einum eða öðrum hætti“

„[...] þá þurfið þið engar áhyggjur að hafa af öðru en að hægt verði að kjósa Vinstri græn næsta vor með einum eða öðrum hætti,“ segir í fréttabréfi Vinstrihreyfingarinnar – græns framboðs til flokksmanna, en þar er vitnað í færslu Stefáns Pálssonar á samfélagsmiðlum.

VG bjóði fram „með einum eða öðrum hætti“

Dagmál | 23. maí 2025

Video Player is loading.
Current Time 0:00
Duration 0:00
Loaded: 0%
Stream Type LIVE
Remaining Time 0:00
 
1x
  • Chapters
  • descriptions off, selected
  • subtitles off, selected
    • Quality

    „[...] þá þurfið þið eng­ar áhyggj­ur að hafa af öðru en að hægt verði að kjósa Vinstri græn næsta vor með ein­um eða öðrum hætti,“ seg­ir í frétta­bréfi Vinstri­hreyf­ing­ar­inn­ar – græns fram­boðs til flokks­manna, en þar er vitnað í færslu Stef­áns Páls­son­ar á sam­fé­lags­miðlum.

    „[...] þá þurfið þið eng­ar áhyggj­ur að hafa af öðru en að hægt verði að kjósa Vinstri græn næsta vor með ein­um eða öðrum hætti,“ seg­ir í frétta­bréfi Vinstri­hreyf­ing­ar­inn­ar – græns fram­boðs til flokks­manna, en þar er vitnað í færslu Stef­áns Páls­son­ar á sam­fé­lags­miðlum.

    „Glanna­leg“ fyr­ir­sögn

    Til­efnið er frétt Morg­un­blaðsins upp úr Dag­málaþætti dags­ins þar sem Líf Magneu­dótt­ir odd­viti VG læt­ur eft­ir­far­andi orð falla:

    „Ég veit ekki einu sinni hvað verður ákveðið á vett­vangi Vinstri-grænna, hvort við yf­ir­höfuð bjóðum fram eða hvað við ætl­um að gera. Það ræðst á öðrum stað, alla­vega ekki hérna í Dag­mál­um.“

    Fyr­ir­sögn á forsíðu Morg­un­blaðsins „Óvíst hvort VG bjóði fram í borg­inni“ olli titr­ingi meðal flokks­manna, en Stefán Páls­son seg­ir hana í færslu sinni „glanna­lega“ og er einnig vísað til þess orðalags í frétta­bréfi flokks­ins.

    Um­mæli Líf­ar Magneu­dótt­ur, sem fyr­ir­sögn­in bygg­ir á, má sjá í mynd­spil­ar­an­um hér fyr­ir ofan. Áskrif­end­ur Morg­un­blaðsins geta horft á þátt­inn í heild sinni með því að smella á hlekk­inn neðst í frétt­inni.

    Orðróm­ar um sam­krull flokka

    Hvorki Stefán né bréf­rit­ari flokks­ins skýra nán­ar hvað „með ein­um eða öðrum hætti“ þýðir, en orðróm­ur hef­ur verið á kreiki um að ein­hverj­ir flokka nú­ver­andi meiri­hluta í borg­inni hafi áhuga á að bjóða fram sam­an í sam­krulli í sveit­ar­stjórn­ar­kosn­ing­um næsta árs.

    Ekk­ert hef­ur enn verið staðfest í þeim efn­um en orðalag Stef­áns um að kjós­end­ur muni geta kosið flokk­inn með ein­um eða öðrum hætti, gef­ur til kynna að fleiri mögu­leik­ar komi til greina en að VG bjóði fram sjálf­stætt, en það hef­ur flokk­ur­inn gert und­an­far­in ár.

    Eins og kunn­ugt er beið flokk­ur­inn af­hroð í þing­kosn­ing­um á liðnum vetri og féll út af þingi. Í nýj­asta borg­ar­vita Maskínu, sem er frá því í apríl, mæld­ist fylgi flokks­ins í borg­inni 3%.

    mbl.is