Aðeins frekari refsiaðgerðir leiði til vopnahlés

Úkraína | 24. maí 2025

Aðeins frekari refsiaðgerðir leiði til vopnahlés

Volodimír Selenskí Úkraínuforseti segir nauðsynlegt að beita Rússa frekari alþjóðlegum refsiaðgerðum til að þvinga þá til vopnahlés. Yfirlýsing hans kemur í kjölfar dróna- og eldflaugaárása Rússa á Kænugarð í nótt, þar sem 15 særðust.

Aðeins frekari refsiaðgerðir leiði til vopnahlés

Úkraína | 24. maí 2025

Selenskí segir að aðeins refisaðgerðir sem beinist gegn rússneska efnahagskerfinu …
Selenskí segir að aðeins refisaðgerðir sem beinist gegn rússneska efnahagskerfinu geti þvingað Rússa til vopnahlés. AFP/Sergei Supinsky

Volodimír Selenskí Úkraínu­for­seti seg­ir nauðsyn­legt að beita Rússa frek­ari alþjóðleg­um refsiaðgerðum til að þvinga þá til vopna­hlés. Yf­ir­lýs­ing hans kem­ur í kjöl­far dróna- og eld­flauga­árása Rússa á Kænug­arð í nótt, þar sem 15 særðust.

„Aðeins frek­ari refsiaðgerðir sem bein­ast gegn rúss­neska efna­hags­kerf­inu munu þvinga Moskvu til vopna­hlés,“ skrifaði Selenskí í færslu á sam­fé­lags­miðlin­um X í morg­un.  

„Moskva ber ábyrgð á því að draga stríðið á lang­inn,“ skrifaði hann jafn­framt.

Vla­dimír Pútín Rúss­lands­for­seti hef­ur ít­rekað hafnað til­lög­um um vopna­hlé sem samn­inga­nefnd­ir Banda­ríkj­anna hafa lagt fram og hef­ur Selenskí sakað rúss­neska for­set­ann um sýnd­ar­mennsku. Hann komi ekki að samn­ings­borðinu með það að mark­miði að semja um frið. 

Sendi­nefnd­ir frá Rússlandi og Úkraínu áttu bein­ar samn­ingaviðræður í Ist­an­búl í Tyrklandi í síðustu viku, í fyrsta skipti í tæp þrjú ár. Viðræðunum lauk hins veg­ar án skuld­bind­inga um vopna­hlé. 

mbl.is