Prinsessan fór alla leið í lit sumarsins

Fatastíllinn | 24. maí 2025

Prinsessan fór alla leið í lit sumarsins

Katrín prinsessa af Wales klæddist aðallit sumarsins í sumarpartýi í Buckingham-höll á dögunum. Hún tók litinn alla leið og klæddist kjól með hatt í stíl eins og sönnu kóngafólki sæmir. 

Prinsessan fór alla leið í lit sumarsins

Fatastíllinn | 24. maí 2025

Smjörgulur blómahattur varð fyrir valinu í stíl við kjólinn.
Smjörgulur blómahattur varð fyrir valinu í stíl við kjólinn. AFP

Katrín prins­essa af Wales klædd­ist aðallit sum­ars­ins í sum­arpartýi í Buck­ing­ham-höll á dög­un­um. Hún tók lit­inn alla leið og klædd­ist kjól með hatt í stíl eins og sönnu kónga­fólki sæm­ir. 

Katrín prins­essa af Wales klædd­ist aðallit sum­ars­ins í sum­arpartýi í Buck­ing­ham-höll á dög­un­um. Hún tók lit­inn alla leið og klædd­ist kjól með hatt í stíl eins og sönnu kónga­fólki sæm­ir. 

Sniðið á kjóln­um er í upp­á­haldi hjá Katrínu. Hann lík­ist kápu á ýms­an hátt, efnið er þykk­ara en geng­ur og ger­ist í kokteilkjól­um, erm­arn­ar eru síðar og sídd­in nær rétt fyr­ir neðan hné.  Kjóll­inn er í smjörgul­um lit sem verður einn vin­sæl­asti lit­ur­inn í sum­ar. 

Kjóll­inn er frá fata­hönnuðinum Em­iliu Wickstead. Wickstead er frá Nýja-Sjálandi en höfuðstöðvar merk­is­ins eru í Bretlandi. Kjóll­inn hef­ur verið fram­leidd­ur í nokkr­um lita­út­færsl­um frá merk­inu. 

Það eru fáir sem eiga jafn el­eg­ant kjóla­safn og Katrín en stílist­inn henn­ar virðist alltaf hitta nagl­ann á höfuðið. Stílisti prins­ess­unn­ar, Natasha Archer, hef­ur starfað með Katrínu síðan árið 2007 og hóf fyrst störf sem aðstoðar­kona henn­ar. Þær eru nán­ar vin­kon­ur og sam­starfs­fé­lag­ar í dag.

Katrín er alltaf jafn elegant í klæðaburði.
Katrín er alltaf jafn el­eg­ant í klæðaburði. AFP
mbl.is